Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Má bjóða þér í afmælisveislu ?

Eftir að ág náði mér af mettunarfallinu í fyrradag hef ég verið í góðum gír.   Mettun haldist há og blóðþrýstingur verið undir meðallagi.

Á morgun á ég tveggja ára afmæli.  Ég vil nota tækifærið og bjóða vinum og vandamönnum að koma til mín og halda upp á daginn með mér.  Ætla ég að vera með opið hús eftir klukkan 17:00 á morgun mánudag.


Það er alltaf erfitt að glíma við mettunarfall

Gærdagurinn var mjög erfiður.  Ég hafði verið með háan blóðþrýsting strax í gærmorgun og rétt fyrir hádegi fékk ég snökt en stutt mettunarfall sem var greinilega vegna þess að ég var að rembast því að ég þurfti að kúka.  Auðvitað hljómar þetta hálf einkennilega en því miður þá geta nauðsynlegir og sjálfsagði hlutir hreinlega tekið á hjá mér.

Ég jafnaði mig nokkuð fljótt og blóðþrýstingurinn lækkaði mikið og því héldum við að þetta væri yfirstaðið.  Eftir fáar klukkustundir fékk ég síðan mjög slæmt mettunarfall og náði engan vegin að ná öndun aftur.  Ambupoka og aukasúrefni þurfti til að koma súrefni aftur í lungun og eðlilegri öndun af stað.  Eftir einhverjar mínútur komst súrefnismettun yfir hættumörk og öndun varð eðlileg.

Í öllum látunum var auðvitað hringt í sjúkrabíl og lækni en þegar þeir komu var ég búin að ná góðri öndun og brosti mínu allra breiðasta þegar mér var sagt að ég þyrfti ekki að fara með sjúkrabílnum á Kanner Klinik.  Þó að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem þetta kemur fyrir þá tekur þetta auðvitað mikið á og erfitt fyrir alla og ekki síður stóru systkini mín en Edda Kristín horfði upp á atvikið og varð auðvitað mikið niðri fyrir.

Ég var auðvitað þreytt eftir þessi átök en náði samt ekki að sofna vel fyrr en seint í gærkvöldi.  Í dag er ég hins vegar hin hressasta.  Vaknaði sátt í morgun og horfið vel og lengi á morgunsjónvarpið.


Örlítil hetjudáð

Ég hef haldið mínu striki þessa vikuna.  Haldið áfram að sýna mínar bestu hliðar síðan ég kom heim af sjúkrahúsinu.  Mettun hefur haldist góð nær alla vikuna og hef ekki fengið eitt einasta mettunarfall.

Viðbótarheimahjúkrunin frá krabbameinsfélaginu er eins og himnasending og er að létta okkur daginn mikið.  Nú þarf bara að skipuleggja heimahjúkrunina á þann veg að ekki verði of mikill tími á milli þess sem að hún kemur til að tryggja að engin nái að safna of mikilli þreytu í einu.


Frábærir dagar síðan ég kom heim

Nú eru næstum liðnir þrír dagar síðan ég kom heim af sjúkrahúsinu.  Ég verð að segja að dagarnir eru búnir að vera hreint frábærir og ég er búin að standa mig eins og hetja.  Ég er ekki búin að fá nein alvarleg mettunarföll, hef getað verið meira án grímunnar heldur en nokkur þorði að vona og er eiginlega búin að vera brosandi frá morgni til kvölds.

Sátt við daginn

Í dag fór ég í kerruna og fór um húsið og reyndi að taka þátt í deginum eins og kostur var.  Ég veit að það er e.t.v. ekki gott að ég sé mikið innan um dýr því að hreinlæti er mér mjög mikilvægt en á sama tíma, þá er líka mikilvægt að ég geti notið hverrar ánægjustundar.  Edda systir kom og sýndi mér Gonzales naggrís og ég ljómaði af ánægju.  Hreinlega skríkti og naut þess að halda í hann og nudda feldinn.

Fannst frábært að fá að klappa nagdýrinu

Heimahjúkrunin mín hefur því miður verið takmörkuð.  Krabbameinsfélagið í Luxembourg hafði heyrt af okkar raunum og í dag fengum við þær frábæru fréttir að félagið hefur ákveðið að aðstoða mig og mun hjúkrunarfræðingur frá þeim veita mér daglega heimahjúkrun, tvo tíma í senn.  Mun það því koma til viðbótar því sem hið opinbera veitir mér í hverri viku.  Það er varla hægt að lýsa hversu frábærar fréttir þetta eru fyrir mig og mína fjölskyldu og hversu þakklát við erum.

Ein með pabba

Það getur verið stórt stökk á milli erfiðu og svo góðu daganna.  Auðvitað taka erfiðu dagarnir ofboðslega mikið á en sem betur fer eru sumir dagar líka góðir og ánægjulegir og þá verður líka að meta.


Loksins komin aftur heim en heimahjúkrun verður óbreytt

Ég kom loksins aftur heim í gær.  Í gærmorgun þegar byrjað var að undirbúa heimferðina byrjaði ég syngja og brosa mínu breiðasta.  Hélt því áfram í sjúkrabílnum á leiðinni heim og meira og minna þar til ég sofnaði í gærkvöldið.

Svo virðist sem slímið í mér hafi minnkað mikið.  Nú næ ég að vera örlítið grímulaus á meðan verið er að hreinsa öndunarveginn en vandamálið er að þegar ég fæ mettunarfall, þá kemur það ofboðslega snökkt og verður dýpra en áður.  Á sjúkrahúsinu átti vinstri lungað til með að falla en það hefur því miður verið örlítið veikt meira og minna síðasta árið.  Ég, ásamt mömmu og pabba höfum verið að reyna að fínstilla umönnunina mína með tilliti til breyttrar stöðu því að það verður að viðurkennast að ég er ekki eins vel á mig komin á t.d. fyrir mánuði síðan.  Umönnunin fellst til að mynda í því að nú verður einhver að vera hjá mér öllum stundum, mamma og pabbi hafa fengið endurþjálfun í endurlífgun og bæst hefur við tækjakostinn á heimilinu.

Við stóðum í þeirri trú að heimahjúkrunin mín væri að komast í gott horf.  Í fyrradag áttu mamma og pabbi fund með þeim sem málaflokknum ráða, eingöngu fyrir þau að komast að því að heimahjúkrunin verði óbreytt, þ.e. tæpir tveir tímar á sólarhring.  Það er varla hægt að lýsa hversu mikil vonbrigði þetta er og það er í sjálfum sér óþolandi fyrir okkur að þurfa að berjast við kerfið varðandi þessa þætti.  Við höfum því ákveðið að eyða ekki frekari orku í þetta mál að sinni, heldur nýta alla okkar orku og tíma í að gera daginn minn sem bestan. 


Hjólin loksins farin að snúast

 Í gær fóru hjólin loksins að snúast, eftir fundin síðasta mánudag þá var ákveðið að við reynum allt til að eg komist heim sem fyrst, svo það sé hægt þá verð eg auðvitað að vera stabíl í nokkra daga, meiri heimahjúkrun og súrefnisgræja heimafyrir. Súrefnistækið kom í dag og verið er að vinna í að fá meiri heimahjúkrun.

Ekki nóg með að eg er veik þá er mamma núna að fá einhvað kvef og Edda systir var veik í dag. Pabbi þurfti að fara aftur til Nigeriu að tala við mennina....þeir geta víst ekki verið án hans þótt að eg vilji líka hafa hann hjá mér.  Í dag kom Hemmi frændi og svo Bryndís að passa mig á sjúkrahúsinu svo að mamma gæti hvílt sig og dúllað við Eddu systir. Amma Edda kemur örugglega á morgun að kíkja á mig og kanski fleyri.

 Eg er bara upp og niður þessa daga. það virðist vera að eg er góð einn daginn og daginn eftir aftur erfið, í dag tók eg aftur 3x mettunarfall og fór niður í 60 í mettun, fallegu flekkirnir mínir komu rétt á undan. Svo þetta ástand mitt tekur mikið á mömmu og pabba og fleyri. Þau eru alltaf þreytt og gætu sofið út í eitt ef þau hefðu tækifæri á því. Við tökum bara einn dag í einu eins og við erum búin að gera undanfarið, það hjálpar okkur.

Við erum samt svo heppin að að eiga svo ótrúlega vini sem styðja okkur með ýmsum uppákomum og gerðum. Olla og Biggi fóru út að hlaupa fyrir mig og Laufey og Torfi ætla að selja bækur og.fl. og svo kemur meira seinna veit eg...., herna er auglysing úr brúnni...

Maggi Eiríks ævisaga/CD

til styrktar Elvu Björg Egilsdóttur

Ævisaga Magga Eiríks og geisladiskarnir Von (Mannakorn) og Reyndu Aftur (Buff og Maggi Eiríks) eru til sölu hjá Torfa/Laufeyju.

Allur ágóði af sölunni rennur óskertur til ―Pallavina‖ - styrktarsjóðs Elvu Bjargar Egilsdóttur.

Verðið er:

Reyndu aftur—Ævisaga Magnúsar Eiríkssonar: 32 €

Geisladiskur (Mannakorn eða Buff): 15 €

Reyndu Aftur—Ævisaga og geisladiskur (Mannakorn eða Buff): 42 €

Hafið samband við Torfa/Laufeyju í síma 26 747 901 eða á e-mail: thalldorsson@williams-halls.co.uk eða laufeyvil@gmail.com

Torfi og Laufey


Algjörir rússíbanadagar

Því miður er Elva ekkert að lagast, það er enn mikið slím í henni og hún er oft að falla í mettun. Í gærkvöldi féll vinstra lungað saman og henni leið mjög illa með kaldan svita og hita.  Við hjónin vorum hjá henni síðustu nótt.  Þegar leið á nóttina lagaðist hún aðeins og lungað opnaðist að hluta til, það finnst engin sýking í blóðrannsókn svo það virðist vera að sjúkdómurinn hefur bara versnað.

Nývöknuð eftir góðan nætursvefn

Við reynum að það séu alltaf einhverjir hjá henni dag og nótt, því hafa ættingjar og vinir tekið vaktir með okkur svo við náum að fara heim annað slagið að kíkja á eldri börnin og gefa þeim að borða og henda í þvottavél. (við gætum ekki gert þetta án þeirra hjálpar, takk elskurnar). Eldri börnin eru búin að vera í viku fríi og hafa verið mikið að heiman hjá vinum að gista osfr. Svo byrjar skólin hjá þeim aftur á morgun.

Að horfa á sjónvarpið.  Það má sjá að púlsinn sem er efsta talan er allt of hár

Læknateymið ætlar að hittast á morgun og funda um litlu prinsessuna, og svo munum við funda með þeim í kjölfarið. Ég býst svo sem ekkert við einhverjum meiriháttar ákvörðunum, enda lítið annað hægt að gera í þessari stöðu.


Erfiður dagur

Eftir að hafa verið nokkuð stöðug í gær og síðustu nótt var dagurinn í dag mjög erfiður.  Um hádegið fór hjartsláttur að hækka mikið og öndun varð mun erfiðari.  Fékk ég í kjölfarið tvö djúp mettunar- og öndunarföll þar sem auka súrefni og ambupokinn skiptu sköpum.

Hitinn búin að rjúka upp

Seinnipartinn voru mamma og pabbi bæði hjá mér en eftir að ég náði að jafna mig þokkalega var talið rétt að pabbi færi aftur heim og reyni að ná sér vel af flensunni svo að hann geti leyst mömmu af sem fyrst en hún er búin að vera meira og minna hjá mér síðustu daga og nætur.


Óþolandi pattstaða - Hjúkrunarfræðingur óskast tímabundið í fullt starf

Svo virðist sem ég sé búin að ná ákveðnu jafnvægi.  Mettun og púls eru að haldast stöðug en ég get því miður ekki verið án grímunnar í meira en örfáar sekúndur án þess að falla í mettun.  Það er auðvitað að gera mér mjög erfitt fyrir því að það þarf oft örlítið meiri tíma til að hreinsa nefið af slími.

Við viljum trúa því að ég nái aftur nógu miklum styrk til að koma fljótt aftur heim enda eru læknar sammála því að best sé fyrir mig að vera heima .  Hvað það varðar erum við því miður í ákveðinni pattstöðu, en eins og staðan mín er í dag þá get ég ekki farið heim nema við getum fengið aukna heimahjúkrun. 

Örþreytt eftir átökin

Nú er svo komið að ekki er annað hægt en að vera yfir mér öllum stundum.  Ekki má fara frá mér í hina minnstu stund og í sjálfum sér verður einhver að vera vakandi hjá mér öllum stundum.  Fyrir utan hjúkrunarfræðinga, þá eru mamma og pabbi þau einu sem geta veit mér þá umönnun sem ég nú þarf.  Það eru nú samt takmörk fyrir því hvað hver einstaklingur getur og því finnst okkur ekkert að því að okkur verði ætluð meiri heimahjúkrun en 12 tímum á viku enda eru 12 tímar langt frá því að vera nægilegt.  Við ætlum því að reyna að sjá hvort að við getum tímabundið ráðið hjúkrunarfræðing beint til okkar eða þar til kerfið hefur tekið við sér og leiðrétt þetta ástand.   

Það er engu foreldri erfiðara en að sjá barnið sitt versna svona eins ég ég hef gert síðustu daga.  Mamma og pabbi geta samt ekki sætt sig við að einhver segi að nú sé komin sá tímapunktur í mínu lífi að við taki hrein líknarumönnun heima við.  Það er bara eitthvað sem ekkert foreldri getur auðveldlega sætt sig við. 


Óbreytt líðan á milli daga

Líðan mín er svo sem óbreytt á milli daga.  Ég er búin að vera nokkuð stöðug síðasta sólarhringinn en er þó samt að fá mettunarföll og því hefur þurft að auka súrefnið í gegnum BiPABið til að ná mér aftur í jafnvægi.  Það er erfitt að átta sig á hvers vegna þetta er að gerast því að ekkert hefur fundist í blóðinu né á röntgenmyndum og því er e.t.v. bara best að trúa að þetta sé tímabundinn vírus sem ég nái að hrista af mér fljótt.

Því miður verður mamma nú að taka vaktina á sjúkrahúsinu meira og minna ein því að pabbi er komin með slæma flensu og hann má því ekki koma á sjúkrahúsið fyrr en hann er orðin góður.


Næsta síða »

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 454565

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband