Leita í fréttum mbl.is

Hægindastóllinn góði

Í vikunni var umfjöllun á RUV um aðstöðu á sængurdeild Landspítalans eða öllu heldur aðstöðuleysi fyrir aðstandendur.  Þessi umfjöllun fékk mig til að hugsa og ég  reiddist hversu lítilfjörlegt mér fannst þetta vera og hvers vegna yfirleitt væri verið að setja þetta fram eitthvert vandamál.  Að það væri vandamál að einhver hafi þurft að deila herbergi með öðrum sjúklingi eða hvað þá að aðstandandi hafi þurft að leggjast svo lágt að sofa í hægindastól.

Þessi umfjöllun sat lengi í mér, því að ég veit að vandamálin í heilbrigðiskerfinu í dag eru yfirleitt miklu miklu stærri og erfiðari en að einhver fullhraustur einstaklingur hafi þurft að sofa í hægindastól á sjúkrahúsinu til að geta verið með sínum nánustu.  Svo fór ég að velta fyrir mér að mat fólks á hvað er stórt vandamál getur aldrei verið annað en þau vandamál sem viðkomandi hefur þurft að glíma við.

Umfjöllunin var um sængurdeild þar sem konur og börn eru að jafna sig eftir fæðingu.  Það er e.t.v. mergur málsins.  Sem betur fer heilsast móður og barni í flestum tilfellum vel eftir fæðingu og því varð aðstaða aðstandenda orðið megin vandamálið.

Að horfa á sjónvarpið.  Það má sjá að púlsinn sem er efsta talan er allt of hár

Í tvö ár áttum við marga daga og margar nætur á barnasjúkrahúsinu hjá dóttur okkar og verð að viðurkenna að þó svo aðstaðan fyrir okkur foreldrana hafi ekki alltaf verið góð þá gat maður aldrei talið það vera eitthvað vandamál eða eitthvað til að hafa áhyggjur af.  Sjúkrahús eru fyrst og fremst fyrir sjúklinga og það sem skiptir mestu máli er að það sé til nægt pláss fyrir sjúklinga og öll aðstaða fyrir þá sé sem allra best.  Aðstaða fyrir fullhrausta aðstandendur hlýtur að skipta minna máli.

Margar nætur svaf ég í hægindastól á sjúkrahúsinu enda ekki önnur aðstaða fyrir hendi.  Aldrei hvarflaði að mér að kvarta yfir því að „þurfa“ að sofa í hægindastól, enda var líðan og velferð dóttur minnar sem sjúklings sem skipti öllu máli. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já Egill, þetta er nokkuð góður punktur hjá þér. Ég hef rekist á fleiri skrif um þessa umfjöllun Rúv og mér sýnist að margir séu sammála þér. Spítalarnir hafa mjög takmörkuð fjárráð, sérstaklega eftir "kreppu" og það er ansi margt sem hefur forgang á þetta. Enda er þetta spítali, ekki hótel. Held það sé alveg réttlætanlegt að kalla þetta lúxusvandamál.

Salóme Mist (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 15:50

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sælar konur. Það sem málið snýst um er að benda þá þá staðreynd að húsnæði er til sem þarf að breyta svo hægt sé að uppfylla þarfir fyrir nægilega mörg pláss fyrir sængurkonur eftir fæðingu. Nú er staðan þannig að senda verður konur mjög snemma heim, jafnvel eftir keisaraskurði. Hægindastóllinn var bara partur af fréttinni, en aðalmálið er skortur á leguplássum fyrir konurnar eftir fæðingu og þá sérstaklega þar sem grípa hefur þurft inn í.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.3.2010 kl. 16:21

3 identicon

Já mikið er ég sammála, það er rétt eins og fólk hugsi ekki áður en það fer að kvarta yfir hlutum eins og þarna í kastljósinu. Mætti halda að sumir litu á fæðingardeildina sem *****hótel. Sú var tíðin að maður kvaddi eiginmanninn við dyr deildarinnar þegar að fæðing var að hefjast og svo var heimsókn tvisar á dag og hringt út með bjöllu. En svona breytast tímarnir og veraldlegar þarfir fólks.

Guð geymi ykkur.

Kveðja

Elín.

Elín (ókunnug) (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 18:08

4 identicon

Ég sá einmitt þessa frétt og hugsaði það sama, hvaða lúxusvandamál er þetta.  En þetta er einmitt vandamál fyrir þá sem hafa aldrei upplifað stærri vandamál.  En mér fannst einmitt fréttin vera um þetta, ekkert endilega um fá legupláss.  Aðallega að það þyrfti að deila herbergjum með öðrum í þessa örfáu daga og ekki svefnaðstaða fyrir maka.  Af hverju getur makinn ekki bara sofið þá heima.  Þegar ég átti yngri börnin 2 var ég bara ein á spítalanum með nýfædda barnið því Halli var heima með þau eldri á meðan.  Fannst ekkert sjálfsagðara :) Við erum bara vön að skipta með okkur verkum.

Vona að þið hafið það sem allra best kæra fjölskylda, hugsa til ykkar mikið.

Aldís (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 22:12

5 identicon

Góður punktur frændi, aðeins of langt síðan að ég hef kíkt hér inn og ætla því að kasa á ykkur kveðju, knús og kossar á alla.

Kveðja Rannveig

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 14.3.2010 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 572
  • Sl. viku: 584
  • Frá upphafi: 454550

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 581
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband