11.8.2008 | 11:09
Mjög hægur bati
Í gær var ég tekin úr vélinni. Er núna með grímuna í þrjá tíma í senn og án hennar í aðra þrjá tíma. Mettun hafði verið nokkuð góð en nú er vandamálið að slímmyndun er alltof mikil, sérstaklega þegar ég er með grímuna.
Í morgun var þetta með allra versta móti og fór mettun niður fyrir öll hættumörk um tíma og skjót viðbrögð skiptu sköpum. Allar tölur eru komnar upp aftur. Fékk ég góðan skammt af lyfjum til að ná að slappa vel af og sef nú vært.
Ég á að fara í röntgentöku aftur á eftir og í dag munu sérfræðingarnir reyna að finna út hvers vegna þessi mikla aukning er á slímmyndun og reyna að bregðast við því.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er ekki gaman að lesa að það gangi ekki nógu vel hjá þér litla skotta. Því miður þá könnumst við alltof vel við þetta ástand.
Við sendum ykkur hlýja strauma og hikið ekki við að hringja ef það er eitthvað sem þið viljið spurja um.
Kærar kveðjur frá Kvistavöllunum,
Aldís og Ragnar Emil SMA hetja.
Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 12:02
Æ, ekkisens leiðindar uppákoma hjá ykkur ! Verst að geta ekki verði nær og knúsað ykkur :( En þú ert svo sterk, vonandi rífur þú þetta af þér fljótt og örugglega...
kv Stína
Stína (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 13:00
æji það er ekki gaman að lesa þetta... :( vona að allt eigi eftir að ganga vel , því að ég veit að þú/þið eruð sterk.. ég hugsa alltaf til ykkar:*:*
KV. Sigga Kristín
Sigga Kristín X-pera (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 19:34
Sæl elsku litla frænka mín. Ósköp er mikið lagt á lítið barn. Ég talaði lengi við pabba þinn í gær, þá var hann staddur í London. Hann ætlaði að drífa sig heim til þín og mömmu þinnar. Það er gott að fá pabba heim, ekki veitir ykkur af góðum styrk heima við. Daníel og Edda eru búin að hafa það gott á Íslandi, það verður nú gott þegar að allir verða komnir heim. Við hjónin sendum ykkur öllum hlýjar kveðjur og vonum að góður Guð veiti ykkur styrk í gegn um þessi veikindi. Guð geymi ykkur öll, kveðja Gumma og Gummi.
Gumma og Gummi (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.