14.8.2008 | 18:21
Nú vil ég fara að komast heim í "venjulegt" heimilislíf
Dagurinn er búin að vera nokkuð góður. Mamma og pabbi komu með stólinn góða í morgun og er ég búin að sitja í honum nokkru sinnum í dag.
Mömmu og pabba finnst þau sjá mikinn mun á mér í stólnum því þá er ég meira að fylgjast með því sem er að gerast í kringum mig og virðist glaðari. Ég sýndi meira að segja bros í dag, eitthvað sem ég er ekki búin að gera í marga daga. Það er auðvitað ekki auðvelt að setja mig í stóllinn með rörin og snúrurnar hangandi við mig en það er sko þess virði.
Slímið er enn að hrella mig en þó minna en síðustu daga. Smá fall í mettun hefur orðið en það hefur verið hægt að grípa inní það snögglega.
Daníel Örn og Edda Kristín koma til baka frá Íslandi næsta þriðjudag og getum við varla beðið eftir fá þau heim aftur. Ég er búin að sakna þeirra hvern einasta dag sem þau hafa verið í burtu. Edda Kristín hringdi í gær og sagði að það væri komin út ný Söngvaborgardiskur og ætlar hún að kaupa hann handa mér .
Nú viljum við sjá að ég geti komist heim sem fyrst og eru allir að leggjast á eitt til að svo geti orðið. Ljóst er að á síðustu tveimur vikum hefur heilsu minni hrakað mikið og aftur verður ákveðin breyting á daglegu heimilislífi.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ elskurnar! hugsum til ykkar every day. kv. fra okkur a Islandinu. Mamma Sessa biður innilega að heilsa ykkur. Ingi Guðný og Baddi Bú.
Ingi Guðný og Baddi (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 14:06
Sæl fallegust.
Til hamingju með brosið!!!
Það er langt síðan að ég hef kíkt á bloggið þitt. hef verið í fríi frá tölvunni allt sumarfríið. Ég sé að það hefur mikið gerst síðan síðast og þú heldur þinni hetjulegu baráttu áfram.
Ég vona að þú komist heim sem fyrst í venjulegt heimilislíf í faðmi fjölskyldunnar. Hafðu það gott.
Baráttukveðjur til ykkar allra.
Gurra.
Gurra (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.