24.8.2008 | 22:31
Líðan mín er nokkuð stöðug
Fyrir nokkrum dögum var ég flutt aftur yfir á einstaklingsherbergi á gjörgæsludeildinni. Nú er ég komin aftur á herbergið næst vaktinni og segir e.t.v. hvernig dagarnir hafa verið. Síðustu daga hef ég verið á súrefnisaðstoð í gegnum aðra nösina, yfir nóttina en verið án hennar yfir daginn. Það hefur gefist nokkuð vel en þó hef ég orðið mjög þreytt seinnipart en öndunin hefur orðið þung.
Í morgun var ég nokkuð góð en þegar líða fór á morguninn fór mér að líða verr. Ég kvartaði nokkuð og hreinsaði pabbi slímið úr nefinu og hálsinum. Allt virtist í góðu lagi en nokkru síðar fékk ég slæmt öndunarfall. Enn og aftur þurfti skjót viðbrögð og sem betur fer náði ég mér nokkuð fljótt aftur. Í framhaldinu varð ég þó að fá öndunarrör til að létta á önduninni.
Þetta atvik tók mikið á, enda voru systkini mín líka hjá mér þegar þetta gerðist. Eftir þetta ræddu þau enn og aftur saman við mömmu og pabba um hve alvarlegur þessi sjúkdómur er og hvað hann getur gert. Voru það erfiðar og tilfinningaríkar stundir.
Líðan mín er nokkuð stöðug. Það er samt ekki hægt að segja að hún sé góð. Ég er að fá þessi slæmu öndunarföll sem virðist vera að ágerast örlítið og er það er mikið áhyggjuefni.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég fylgist alltaf með hér á síðunni og mikið hef ég hugsað til ykkar síðustu vikur! Þetta er andstyggilegur sjúkdómur og erfitt að horfa upp á þessi litlu kríli í öllum þessum græjum. En mikið eruð þið dugleg að halda samt áfram að blogga og setja inn myndir af litlu prinsessunni sem er svo falleg að hún hlytur að vefja öllu staffinu um fingur sér!! Gangi ykkur vel.
Baráttukveðjur frá Stulla fjölskyldu.
Gróa (Stullamamma) (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 00:27
Ást, kossar og stórt faðmlag á ykkur öll.
GuA
Guðný Anna (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 06:04
Sæl kæra fjölskylda. Ég kíki alltaf hér inn til að fylgjast með baráttunni. Gott að stóru systkinin eru komin heim til að halda aðeins í höndina á mömmu og pabba. Gott að sjá brosið aftur hjá þeirri litlu!
kveðja, Ingibjörg Sif
Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 12:26
Kossar og Knús til ykkar elsku fjöskylda:* ég er alltaf að hugsa til ykkar... Baráttu kveðja til ykkar... Kveðja frá rigningunni á Sauðárkrók
Sigga Kristín x-pera (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 16:18
Endilega að kynna ykkur betur NIV protocolið. Það er það sem hjálpar þessum krílum mest og best og eina leiðin til að koma í veg fyrir slímsöfnun í öndunarveginum.
Kv. HAL
Hallgrímur Guðmundsson (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 20:53
Hæ elsku fjölskylda. Ég er ný búin að frétta af blogginu ykkar og fylgist með ykkur. Að horfa á litla sólargeislann sinn berjast fyrir lífi sínu hlítur að vera það erfiðasta sem nokkur foreldri getur lent í. Þið eruð alveg svakalega dugleg og ég sendi ykkur mínar bestu baráttu kveðjur og takk fyrir að blogga og leifa okkur að fylgjast með. Guð geymi ykkur
kossar og knús frá Keflavíkinni
Bryndís Líndal
Bryndís Líndal (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 21:45
Ohhhh hvað er gaman að sjá bros hjá litlu prinsessuni - hún er svo mikil baráttudama. Takk fyrir að halda áfram að blogga - þá fær maður óbeint að taka þátt í þessu með ykkur. Hugsa hlýtt til ykkar, hugrakka fjölskylda.
STÓRT knús til ykkar allra frá okkur.
Ása og co. í Kef.
Ása og Tryggvi Þór (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 15:19
Sendu barrattukvedjur fylgjumst med ykkur daglega
knus kuns Eirika og Bussi
Eirika og Bussi (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.