12.10.2008 | 06:09
Syngjandi á sunnudagsmorgni
Enn hef ég verið að fá örlítinn hita og það er svo svo skrítið að hitinn ríkur upp í stuttan tíma og svo er ég hitalaus þess á milli. Þetta hefur leitt til þess að svefninn minn hefur ekki verið góður og hálf slitróttur. Slímið í öndunarveginum hefur verið mikið og þykkt og svo virðist sem ég sé með einhverja kvefpest og hafa mamma og pabbi verið að fylgjast vel með mér öllum stundum og náð að hreinsa öndunarveginn áður en illa hefði farið.
í gær sofnaði ég fyrir sex í eftirmiðdaginn og náði að hvíla mig mjög vel. Súrefnismettun varð mjög góð og púlsinn einnig og náði ég að sofa fast og vel í meira en tólf klukkutíma. Eitthvað sem ég hef ekki gert lengi. Þennan morguninn er ég mun betri en síðustu daga. Vaknaði hress og kát og byrjaði að syngja með Söngvaborginni minni fyrir sjö í morgun.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku Elva Björg,
Þegar maður fær góðar fréttir af þér, þá gleymir maður öllu rugglinu sem ar í gangi. Ég get bara hlegið af KB-bréfunum mínum og þakkað fyrir að fá að þekkja þig og þína fjölskyldu.
Olla Dis (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 13:15
Enn yndislegt Elva mín, vonandi verða fleiri svona dagar Það gerir allt svo mikið léttara fyrir þig og þitt fólk :)
knús og kossar
Stína (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 11:14
Bara æðislegt að heyra þetta :D er alltaf að hugsa til ykkar, mér finnst alveg æðislegt að geta fylgst með þér og ykkur.. bið að heilsa öllum alveg rosalega vel... Kossar og Knús til ykkar:*:* Kveðja frá Siggu X-peru;)
Sigga Kristín X-pera (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 17:09
Sael min kaera.
Kaer kvedja til thin og fjolskyldunnar. Saerun Anna bidur rosalega vel ad heisla Eddu og Daniel.
Kaer kvedja fra Kina,
Trausti M.
Trausti Magnusson (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 06:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.