17.10.2008 | 12:47
Ég er hálf döpur í dag
Í dag sem og síðustu daga er ég búin að vera hálf döpur. Ég veit ekki alveg hvað það er sem er að pirra mig en það er eitthvað. Mér líður bara ekkert sérstaklega vel í augnablikinu.
Súrefnismettunin hefur verið þokkaleg síðustu daga en svo er ég að fá snögg föll í augnablik og svo upp aftur. Þessi föll í mettun eru meiri en hafa verið áður og ekki gott að segja hvað veldur. Mamma og pabbi hafa verið dugleg að hreinsa öndunarveginn og vonandi næ ég að ná mér af þessu fljótt.
Síðustu vikurnar hef ég ekki viljað að haldið sé á mér. Alla vega ekki lengi í einu. Svo virðist sem líkaminn minn hafi ekki nógu mikinn styrk lengur til að haldið sé á mér án þess að ég eigi erfitt með öndun.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku litla vinkona. Ég vona að þér fari að líða betur. Fallegar haustmyndirnar af ykkur í Lúxuslandinu.
Ást og kossar til ykkar allra
Guðný Anna (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 17:57
leiðinlegt að heyra að þú ert ekki uppá þitt besta. Fylgist með ykkur þó ég þekki ykkur ekkert. Vonadi fer þér að líða betur. Hef þig í bænum mínum. kær kveðja Ágústa
Ágústa mamma Ásgeirs (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 21:19
Hæ litla snúlla! Kíki á hverjum degi á síðuna þína sæta prinsessa, vona að þér fari að líða betur, æi þessi leiðinda mettunarföll eru bara hundleiðinleg, skiljum þig mjög vel að vera leiða yfir þessu. En við sendum þér hlýjar hugsanir og góða strauma.
Knús og kossar frá Hafnarfirði,
Aldís og co.
P.S. Við höfum ekki getað haldið á Ragnari Emil í nokkra mánuði vegna öndunarörðugleika, oft fellur hann svakalega bara þegar verið er að færa hann á milli rúms og stóls. Það er ömurlegt að geta ekki haldið á barninu sínu í fanginu og knúsað það, en maður finnur bara aðrar leiðir til þess.
Aldís (mamma Ragnars Emils) (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 19:00
Sael min kaera.
Vonandi er ther farid ad lida betur litli engill.
Kaer kvedja til ykkar allra fra Shanghai,
Trausti M.
Trausti M (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 03:44
Sæl sæta. En leiðinlegt að heyra að það er ekki gott að láta knúsa sig - en það verður þá að koma eftir öðrum leiðum - það þurfa allir gott knús reglulega Fallegar myndir úr haustinu - maður finnur nánast lyktina. kveðja til allra.
Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 12:35
hun er algjor snulla vid fylgjumst med ykkur en erum ekkert duglega ad fara i gestabokina
bid ad heilsa
Eirika og Bussi (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 23:30
Halló fallega. Leiðinlegt að heyra að þér líður ekki vel. Kíki reglulega á síðuna þó ég kvitti ekki í hvert skipti. Kær kveðja, Soffía.
Soffía (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 09:38
hæ elsku frænka
leiðinlegt að heyra að þér líður ekki vel núna. Ég er viss um að þú rífir þig uppúr þessu.
Bið að heilsa öllum í Lúx og gefðu þeim nú stórt knús frá mér..
Kv. Kristín Ósk frænka
Kristín Ósk (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 18:06
Hei sæta, en slæmt að heyra að þú sért svona leið, en ég veit að þú átt góða að sem reyna að gera allt fyrir þig, ekki síst pabbiog mamma, Daníel og Edda- og auðvitað allir hinir :D
Risaknús frá snjóuga Íslandi
Stína (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 17:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.