4.1.2009 | 20:19
Við erum ekkert ofurfólk
Síðustu vikurnar heima eru búnar að vera góðar en á vissan hátt erfiðar. Þær hafa reynt mikið á. Ekki bara á mig heldur líka reynt mikið á foreldra og systkini. Ef til vill er það vegna hátíðanna sem nú eru að baki því þá var minna um hina hefðbundnu heimilishjúkrun, en líklegra vegna þess að heilsu minni hefur verið að hraka og því hef ég þurft mun meiri umönnun en áður.
Nú er svo komið að einhver er hjá mér allan sólarhringinn. Þegar ég á við hjá mér, þá á ég við hjá mér í stofunni heima í Niederanven. Þá eru annað hvort mamma eða pabbi i hjá mér yfir nóttina á meðan annað nær að sofa á efri hæðinni og reyna að ná góðum nætursvefni og hvíld.
Að jafnaði er umönnunin ekki erfið en svo eru hlutir sem flestum finnst sjálfsagðir en eru mér mjög erfiðir. Í dag fór ég t.d. í bað og þurfti þrjá til að aðstoða mig svo það gengi stórslysalaust. Pabbi að halda mér, mamma að þvo mér og Daníel bróðir að halda við grímuna svo ég fengi ekki súrefnisfall.
Auðvitað finnst mömmu og pabba best að ég sé heima en það hafa komið upp spurningar hvort við eigum ekki að þyggja að ég fari á sjúkrahúsið annað slagið og verði þar í nokkra daga í senn á meðan mamma og pabbi og ekki síður Daníel og Edda nái að hlaða batteríin örlítið. Einhverjum gæti þótt þetta hálf kalt mat hjá mömmu og pabba en við getum alveg viðurkennt að við erum ekkert ofurfólk. Svo má ekki gleyma að systkini mín þurfa sitt svigrúm öðru hverju einnig.
Við ætlum að ræða þetta við læknateymið mitt næstu daga og sjá hvernig þessum verður best komið.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra fjölskylda
Gleðilegt ár og takk fyrir gömlu árin - ég skil vel að það það sé komin þreyta í heimilisfólkið, enda ekkert smá álag sem fylgir því að hugsa um svona litla prinsessu. Frá mínum bæjardyrum séð þá eruð þið hetjur engu síður en litla snúllan ykkar, en hetjur þurfa líka að hvíla sig og hlaða batteríin - ekki spurning.
Kveðja frá Keflavík - Ása
Ása í Kef. (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 09:37
Mér finnst það sko ekki kallt mat að fara á sjúkrahúsið öðru hvoru til að hvíla ykkur öll, vá hvað ég skil ykkur vel. Hef líka verið með þessar hugsanir, manni finnst eins og maður eigi að gera allt sjálfur en það er bara ekki hægt. Síðustu vikurnar sem að Ragnar Emil var á spítalanum þá vorum við farin heim að sofa því við vorum orðin svo svefnlaus og krakkarnir orðnir ansi mömmu og pabba sjúkir. Þetta var erfið ákvörðun en var öllum til góðs. Kannski líka nauðsynlegt fyrir ykkur hjónin að geta sofið í sama rúmi einstaka sinnum og verið hjón en ekki bara hjúkrunarteymi í kringum stelpuna ykkar og enn mikilvægara að vera bara mamma og pabbi fyrir krakkana.
Gleðilegt ár elskurnar og hafið það sem allra best.
Knús frá Kvistavöllunum, Aldís og Ragnar Emil.
P.S. Yndisleg fjölskyldumyndin af ykkur
Aldís Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 11:10
Sæl mín kæra, gleðilegt ár!! Nú fer að styttast í að það verði ár frá því að við sáumst fyrst, í Íslandsferðinni góðu. Og auðvitað urðum við strax vinkonur litli engill
En ég verð samt að taka undir með Aldísi, það er örugglega bæði þér og hinum til góða að allir séu úthvíldir- þetta er orðið svo langur tími og það skilja allir sem þekkja langtíma veikindi.
Risaknús og kram til ykkar allra
Stína (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 11:47
Elsku þið í mínum huga eruð þið algjörar hetjur og það þarf líka hugrekki til að hugsa rökrétt og ganga ekki alveg fram af sér.
Það er Elvu Björgu og ykkur öllum ekki til góðs að þið verðið alveg örmagna á sál og líkama. Ég trúi ekki að nokkrum þyki ámælisvert að þið sinnið hvort öðru og Daníel og Eddu inn á milli.
Ég efast um að ég hefði "meikað" vikurnar á gjörgæslunni með Salóme í Nice ef ég hefði ekki farið heim að sofa í hausinn á mér á nóttunni.
Baráttukveðjur og risaknús.
Rúna
Rúna (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 15:10
Það er ekkert kalt að hvíla útkeyrt fólk, þið gerið ekki gagn með tóm batterí ... guð blessi ykkur
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 5.1.2009 kl. 19:53
Það þurfa allir á því að halda að fá smá hvíld annað slagið og þurfið þið ekkert að skammast ykkar kæra fjölskylda!
Gleðilegt ár og takk fyrir allt gamalt og gott!
Kveðja Rannveig Jónína Guðmundsdóttir.
Rannveig (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 13:57
Sæl öllsömul, bestu nýárskveðjur frá okkur hjónum á Ásabrautinni í Grindavík, með þökk fyrir allt það liðna. Það sama á um alla að það þarf hver og einn á hvíld að halda, hversu öflugur sem við teljum okkur vera. Við þær aðstæður sem þið nú glímið við þá er hvíld nauðsyn, takið hana hversu lítil sem hún er. Hugur okkar er hjá ykkur. Færið Hemma og fjölskyldu okkar bestu kveðjur..., Guð geymi ykkur öll...,Gumma og Gummi.
Gumma og Gummi (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 21:07
Aeji litla snullan Egill og Vala tad er ekkert ad tvi ad taka sma fri tid verdid lika ad fa sma hvild hugsum til ykkar
Eirika og Bussi
Eirika (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.