4.2.2009 | 08:58
Í góðri ummönnun á Kanner Klinik
Ég er búin að vera tvær nætur á bráðadeildinni á Kanner Klinik en það er barnasjúkrahúsið í Luxembourg. Þar er ég í góðri umönnun og er bara nokkuð sátt.
Ég á til að setja upp skeifu þegar hjúkrunarfræðingarnir koma inn því að ég veit að oft þarf þá að gera eitthvað við mig sem mér finnst ekki þægilegt, eins og að hreinsa öndunarveginn eða að stinga mig vegna blóðprufu. Allir eru þá búnir að átta sig á að það er hægt að ná fram brosi hjá mér með að setja uppáhalds sjónvarpsefnið mitt í spilarann. Þá er ég sko ánægð.
Stuttu eftir að ég fór á Kanner Klinik hætti spilarinn minn að virka og sama hvað pabbi reyndi að gera. Hann vildi bara ekki virka. Því var ekkert annað í stöðunni en að fara í næstu búð og kaupa nýjan ferðaspilara handa mér því ekki get ég verið án þess að horfa á Söngvaborg.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ, gott að heyra að þér líði vel. Verra með spilarann, pabbi verður fljótur að redda því í Cactus. Hlakka til að sjá ykkur öll, seinna í febrúar.
Dóri Guðfinns (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 12:05
Hæ,Hæ,
Við mamma fórum að heimsækja Elvu mína í dag. Fyrst vildi nú enginn hleypa mér inn, mér var sagt að ég væri of lítill. Svo þegar mamma sagði að við værum par, svona alvöru par, þá fékk ég að fara inn.
Við áttum þar góða stund saman , horfðum á æsispennandi þátt um Teletubbies. Elva var bara mjög hress og kát og langlanglang sætust
Teletubbieskveðjur,
Björn Hinrik
Björn Hinrik (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 19:22
Gott að heyra að heyra að þú hafir fengið að komast aðeins á sjúkrahúsið og mamma og pabbi hafi getað skroppið aðeins í burtu.
Ást og kossar
Guðný Anna (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 22:30
Frábært að heyra að þú hafir komist á spítalann í nokkra daga. Vonandi ná mamma þín og pabbi að njóta daganna í London, þau hafa svo gott af því. Yndislegt að heyra líka um sytkini þín, þú ert sko heppnust í heimi að eiga þau, það er greinilegt.
Kær kveðja, Soffía.
Soffía (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 10:54
Björn Ingi og Teletubies, Söngvaborg..... það er bara stanslaust fjör hjá þér skvís! Það er eins gott að spilarinn virki Það verður samt örugglega gaman að koma heim aftur eftir tilbreytinguna - þegar allir verða orðnir úthvíldir og ferskir
Stína (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 22:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.