14.6.2009 | 22:42
Baðaði mig í sólinni
Ég er búin að vera mjög góð síðustu daga þó svo að slímmyndun sé búin að vera nokkuð mikil en við höfum náð að hreinsa öndunarveginn mjög reglulega og komið í veg fyrir öndunarföll.
Í dag var frábært veður og gat ég farið út á pall og legið aðeins í sólinni, horft á trén, skýin og hlustað á fuglana.
Það getur stundum verið erfitt að baða mig því að enn erum við ekki búin að finna nógu gott og meðfærilegt bað til að nota í stofunni. Við ákváðum við í dag að nota bara tækifærið og baða mig úti við í góða veðrinu. Því var náð í uppblásna gúmmíbátinn minn, hann fylltur af baðvatni og og böðuð hátt og lágt. Mér fannst þetta alveg frábær tilhögun og naut þess að láta stjana við mig.
Á morgun er ég að fara í mátun fyrir nýja kerru en hún á líka að virka sem nokkurs konar rúm sem hægt verður að setja í bílinn. Þá verður vonandi líka komin einhver framtíðarhugmynd fyrir böðun en þangað til þá finnst mér ekkert að því að vera bara böðuð í mínum gúmmíbát þegar veður leyfir.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er nú ekki slæmt að fá að baða sig í sólinni. Segðu sólinni að ég sé að koma og hún eigi að skína á okkur meðan við erum hjá ykkur.
Þetta er að skella á.....föstudagurinn næsti....og ég verð mætt á pallinn.
Hlakka ogurlega til í að sjá ykkur öll.
Ást og kossar,
GuA
Guðný Anna (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 14:55
Vá hvað þú ert flott í baði úti á palli, það er sko lúxus að búa í landi þar sem veður verður heitt og gott :) Æðislegar myndirnar af þér, myndin þar sem stóra systir og mamma kíkja á gluggann er yndisleg :)
Það verður spennandi að sjá hvernig ferðamálin fara hjá þér, við nefnilega erum ekki með neitt í bílinn, né ennþá til að fara út úr húsi. Ef Ragnar Emil fer út þá er það með sjúkrabíl, frekar glatað.
Þið verðið að sýna okkur hvað hún fær því kannski getum við gert svipað, myndi endilega vilja fá hugmyndir :)
Knús, Aldís og Ragnar Emil.
Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 15:39
Rosa sniðug lausn með gúmmíbátinn, líst vel á þetta hjá ykkur :) Smá sólbað gerir líka öllum gott!
Salóme Mist (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 19:21
Ekki amalegt að liggja úti á palli í "pottinum" þú ert flottust, bið að heilsa hele famelíen!
Kveðja Rannveig frænka.
Rannveig Jónína Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 22:04
hæhæ
frábært að geta bara farið í útibað :) það verður spennandi að sjá hverni ykkar bílamál fara kanski verður það einhvað sem við gætum stuðst við hérna heima.... haha þetta fer að verða alþjóðlegt verkefni fyrir þessi 4-6 börn :o) ég er búin að fá grunnteikningu af því sem verið er að smíða fyrir okkur :)
kv Steinunn Björg og co
Steinunn Björg (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 22:35
Hæ knúsan min!!
Já, það er ekkert smá frábært að geta framleingt heimilið út í garð, með tilheyrandi sólskini og fuglasöng,- enda er þetta bara flottur pallur, alveg við prinsessu hæfi ;)
Risa knús og kossar til allra
Stína (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 15:19
Æi dúllan.. yndislegt hvað það er gott að geta legið úti með beran mallakút.. hér er bara rok ofan á rok! þó sé að koma smá sól og hlýna.
var að skoða verð til lux í agust.. VÁÁÁ.. yfir 30.000 einn leggur fyrir eina manneskju!!.. vonandi koma einhver tilboðs svo maður geti kíkt í heimsókn til ykkar! astarkveðjur fra okkur inga og badda.
Guðný (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.