6.9.2009 | 12:05
Heima er auðvitað alltaf best
Núna er rúm vika síðan að Mamma, Daniel og Edda komu frá Íslandi og þau komu auðvitað strax upp á sjúkrahús að ná í mig. Þau höfðu rosa gott af því að fara í smá frí og hitta ættingja og vini. Fara í sumarbústaðinn og á Stokkseyri.
Stuttu eftir að eg kom heim var nýja baðkarið mitt komið og það er sko allt annað að vera böðuð núna. Loksins get eg hreyft mig aðeins og mér liður rosa vel. Svo fórum við síðasta föstudag á rúntinn í NOVA bus, (sem er keyrsluþjónusta fyrir fatlaða) Þar er kerrunni bara keyrt upp í bússinn og fest í sérstök belti. Við fórum til Kohnen sem er stoðtækjafyrirtæki að máta nýju kerruna mína, hún ætti að vera tilbúin eftir helgi veiiii. Þá verð eg með hillu á kerrunni fyrir allt fína dótið mitt. Vonandi verður þá auðveldara að fara með mig um.
Mamma keypti nokkra Latabæjar diska fyrir mig á Íslandi og mér finnst þeir ofboðslega skemmtilegir.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ músin mín, mikiðer gaman að skoða myndirnar þínar! Þú ert orðin svo stór, komin með þessa myndarlegu tíkarspena og augljóslega upprennandi listamaður eins og móðirin ;D Auðvitað hefði verið skemmtilegra ef þið pabbi hefðuð getað komið hingað með hinum, en það er víst ekki í boði... :( En það hlýtur að vefra gott að fá alla heim aftur og koma hlutunum í réttar skorður,- ekki skemmir fyrir að fá nýtt efni í áhorf... :D
allar mínar bestu...
Stína (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 19:33
Gaman að heyra að nýju græjunum þínum og ég tala nú ekki um að þú hafir fengið að fara í bus!
Ást og kossar á línuna.
GuA
Guðný Anna (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 13:13
dásamlegt! latibær klikkar seint, en hann er sívinsæll hér á bæ!
Rannveig (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.