Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2014
9.1.2014 | 08:09
Núna eru komin 4 ár síðan þú kvaddir þennan heim
Já núna eru 4 ár liðin frá því að þú kvaddir þennan heim og ég man þann dag eins og það hefði verið í gær. Það líður ekki sá dagur að eg hugsi ekki til þín elskan mín, en það var ljóst að baráttan þín við þenna erfiða sjúkdóm SMA var ansi erfið og við vissum alveg í hvað stemmdi. Maður vill auðvitað hugsa að núna ertu bara að leika við hin börnin og fólkið sem eru búin að kveðja. Ég er samt ekki en búin að skilja af hverju svona sjúkdómur er lagður á suma!
Mig dreymir þig annað slagið og þá ertu oft bara labbandi og leikandi þér eins og venjulegir krakkar gera. Þótt að þú hafir nú aldrei getað labbað eða setið! En þú gast brosað og tjáð þig með þínu töfrandi augnarráði, elskaðir að hlusta á söngvaborg og horfa á Dóru æfintýrakonu og fleiri skemmtilegar teiknimyndafígúrur.
Ég hugsaði mikið til þín í haust þegar öll 6 ára börn voru að hefja sína fyrstu skólagöngu. Þá hugsaði ég að við ættum að vera að fara með okkar ýngsta barn í skólann og kaupa skólatösku og fleira....svona fer hugurinn með mann stundum. Núna erum við bara komin 2 eldri unglinga á heimilið 20 og 16 ára, sem eru ekkert með neina barna þarfir, takandi bílpróf og fara á skólaböll, kaupa sín föt og skóladót sjálf..........Þessi aðlögun að þurfa ekki að sjá um neitt lítið barn frá einum degi til annars var erfið fyrstu mánuðina og árin en maður er nú orðin vanur því í dag.
Við fjölskyldan munum alltaf sakna þín svo mikið og við tölum oft um þig.
Saknaðarkveðja mamma og co.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar