Leita í fréttum mbl.is

Hvernig væri bara að fara á fætur klukkan þrjú.....að nóttu !

Í gærkvöldi var ég enn með þó nokkurn hita en þessi flensa er hálf einkennileg því að hitinn vill rokka mikið og er ég til að mynda nær hitalaus nú í morgunsárið.  Varla er það hitastílunum að þakka því að ég hef bara skilað þeim til baka stuttu eftir að þeir eru settir í mig.

 

Ég ákvað klukkan þrjú í nótt að nú væri heppilegur tími til að vakna og fara á fætur.  Mamma og pabbi reyndu allt til að ná mér í svefn aftur, ganga með mig um gólf, hita pelann aðeins meira og svo framvegins en mér hefur fundist alveg nóg að fá mér stuttan blund við og við.  Sit núna alsæl í mínum stól og horfi á þýska morgunsjónvarp barnanna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ sætust. Var bara að kíkja á þig (eins og ég geri nú nokkrum sinnum á dag) og athuga hvort flensan hefði ekki bara farið burt. Segðu bara við pabba þinn ef þú vilt fá hann á fætur á ókristilegum tíma "VALE" og "CLARO" því þetta eru orð sem fá pabba þinn og alla þá sem eru nálægt honum til að hlægja mikiðog þau hendast framúr.

Afmælisstelpan mín þú og þið eruð í huga mér - alltaf -

Ást og kossar

Guðný Anna (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 14:31

2 identicon

Sæl litla fallega stúlka.

Vilborg frænka þín sagi okkur frá bloggsíðunni þinni. Við Palli höfum þig í bænum okkar frá því hún sagði okkur frá  skrambans flensunni þinni - þá vorum við stödd á Kanarí. Vonum að þér líði sem best. Baráttukveðjur til þín og fjöslkyldunnar.  Knús og koss.

Magga og Palli.

Magga og Palli (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 454651

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband