Leita í fréttum mbl.is

Meiriháttar framför og nær búin að fá fyrri styrk

Þegar mamma og pabbi komu til mín í gær var búið að taka úr mér öndunarrörið og sat ég uppi og söng og talaði við Hemma frænda og Bryndísi sem voru hjá mér.  Það var því dálítið erfitt fyrir þau að ímynda sér að ég hafi verið flutt með hraði á sjúkrahúsið átta tímum áður.

Pabbi var hjá mér í nótt.  Nóttin var mjög góð og svaf ég vært með BiPAPið.  Í morgun fékk ég örlítið fall þegar ég var þvegin og skipt var á rúminu mínu en það kom svo sem ekki mikið á óvart því ég má ekki við miklum hreyfingum og ekki má halda á mér lengi án þess að ég byrja að erfiða.

Lungað virðist vera komið vel upp aftur en röntgen í dag um staðfesta það.  Þá eru allar blóðprufur góðar og virðist allt "sjokk" frá gærdeginum vera farið úr blóðinu.  Ef allt gengur svona vel í dag og næstu nótt, þá má jafnvel búast við að ég fái að fara aftur heim á morgun.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

frábærar fréttir, gangi ykkur vel

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 3.12.2008 kl. 15:43

2 identicon

Gott að heyra, Gangi ykkur vel, þið eruð alltaf í huga mér..

Sigga Kristín (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 16:20

3 identicon

Frábærar fréttir, vá hvað þú ert dugleg elsku snúlla.  Fékk sjokk þegar ég las fyrri færslu en yndislegt að þú ert á batavegi.  Ótrúlegt að þú lendir í svona veseni stuttu eftir að Ragnar Emil lenti í þessu.  Hugsum til ykkur elsku fjölskylda, gangi ykkur rosalega vel.  Vonandi komist þið heim sem fyrst.

Knús og baráttukveðjur, Aldís og fjölskylda.

Aldís og Halli (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 20:02

4 identicon

Sko þig!

Salóme Mist (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 454607

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband