Leita í fréttum mbl.is

Hrakaði mikið fyrir helgi og flutt á sjúkrahús í skyndi

Á föstudag var hugmyndin að ég færi á Kanner Klinik í hvíldarinnlögn.  Klukkutíma áður en mamma ætlaði með mig þangað byrjaði mér að hraka mikið.  Svo mikið að ekki var um annað að ræða en að hringja á sjúkrabíl og flytja mig í skyndi þangað.

Það skal bara viðurkennast að líðan mín seinni hluta föstudags og í gær var mjög slæm.  Ég svaf mikið og þegar ég var vakandi var ég mjög fjarlæg.  Búin að fá nokkur slæm mettunarföll og púlsinn ofboðslega hár bæði í vöku og svefni.  Þá hef ég verið að kasta mikið upp um helgina.

Ekki hefur fundist nein sýking í blóði en röntgen myndir sýna að hluta af lungum eru ekki að starfa eðlilega.  Þá eru beinin mín orðin mjög þunn og skökk, sérstaklega rifbeinin.

Síðasta nótt var mun betri.  Púlsinn hefur náð að lækka og mettun hefur einnig náða að haldast yfir hættumörkum.  Ég er nú samt með auka súrefni í gegnum BiPab tækið mitt og ekki talið rétt að það verði minnkað að svo komnu máli.

Pabbi er búin að vera að vinna í pílagrímaflugi í Afríku en kom í skyndi til baka um helgina og er búin að vera meira og minna hjá mér síðan.  Mamma ætlar síðan að vera hjá mér yfir daginn eining á milli þess sem hún sinnir eldri systkinum mínum sem eru í skólafríi þessa vikuna.

Síðustu dagar hafa sýnt mikið bakslag í líðan eftir að ég hef verið stöðug síðustu mánuði.  Ég hef nú samt sýnt áður að ég hef getað náð mér upp úr álíka stöðu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi ykkur vel, þið eruð algjörar hetjur öll sömul.

Þórunn Þorbergs (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 10:45

2 identicon

Gangi ykkur vel hetjurnar mínar!! ég hugsa alltaf til ykkar :*

Sigga Kristín (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 11:33

3 Smámynd: Fanney Edda Frímannsdóttir

Elsku Elva Björg. Fanney Edda er líka búin að standa í ströngu en er nú á batavegi, við sendum okkar bestu kveðjur og vonum að þú komist heim sem fyrst.  

Fanney Edda Frímannsdóttir, 2.11.2009 kl. 13:19

4 identicon

Elsku litla lúsin!

Vonandi er ástandið að skána - bíð eftir góðum fréttum!  Vonandi verður þetta að ánægjulegri hvíldarinnlögn fyrir ykkur öll.

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 14:54

5 identicon

Sæl yndislegust...leiðinlegt að heyra að þú sért ekki nógu hress...Megi Guð og allir englarnir...(sendi þér alla mína líka) varðveita þig...knús á alla línuna...bestu kveðjur frá Erlu frænku...

Erla Sigríður Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 454651

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband