Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010
27.2.2010 | 10:46
Við reynum að horfa fram á veginn
Um síðustu helgi kom fjölskyldan til baka eftir stutt en frábært frí saman. Eitthvað sem var nauðsynlegt fyrir alla. Komast í nýtt umhverfi, ná að ræða vel saman og ekki síst að fá örlitla útrás.
Hefðbundnir skóladagar tóku síðan við hjá Daníel Erni og Eddu Kristínu, en þau eru búin að standa sig eins og hetjur síðustu vikurnar og hafa sýnt hvor öðru sem og okkur foreldrunum mikinn styrk. Vinnan hjá Agli er með rólegra móti núna og er því heima þessa dagana. Við höfum því reynt að nota tækifærið og ganga frá ýmsum hlutum sem best er að gera í sameiningu.
Við erum enn að fá póst merktan á Elvu Björgu. Þó erfitt sé, þá er það auðvitað eitthvað sem verður að teljast á vissan hátt eðlilegt til að mynda reikningar fyrir sjúkrabíla, mjólk og lyf. Eitthvað sem virðist bara fara seint í gegnum kerfið. Það var samt gríðalega erfitt að lesa póstinn frá sveitarfélaginu þar sem við áttum að staðfesta hana í leikskóla á árinu, en hér er leikskólaskylda fyrir börn þriggja ára og eldri.
Þó svo það hafi verið búið að taka öll tæki sem fylgdu Elvu Björgu af heimilinu þá átti enn eftir að ganga frá ýmsum hlutum eins og fatnaði og leikföngum. Í vikunni fannst okkur eins og rétti tíminn væri komin til að ganga í það verk. Örlitlu af fatnaði og leikföngum ákváðum við að geyma en öðru hefur verið pakkað og verður gefið til líknarmála. Þá var enn mikið til af slöngum, síum, grisjum, plástrum og fleiru og verður vonandi hægt fyrir barnaspítalann að taka við þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.2.2010 | 20:21
Í dag er einn mánuður síðan Elva Björg kvaddi þennan heim
Í dag er einn mánuður síðan Elva Björg fór frá okkur og verður að segja að þetta er búin að vera mjög erfiður mánuður.
Við vorum auðvitað búin að venjast því að hafa litlu brosmildu stelpuna okkar alltaf heima í stofunni okkar svo núna er stofan búin að vera svolítið tómleg. Ég (Vala) hef stundum haft erfitt með að sofna og þá hef ég tekið það ráð að sofa bara niðri í stofu enda er ég búin að sofa þar meira og minna síðustu 2 árin. Svo er líka svolítið skrítið hvað eru fáir að koma inn á heimilið. Maður var vanur því að sjúkraþjáfarar og hjúkrunarfræðingar voru nánast á hverjum degi inni á heimilinu en núna er heldur fátt um heimsóknir. Líklega eitthvað sem við máttum svo sem búast við.
Bæði minningarathöfnin og útförin voru mjög margmenn fallegar athafnir. Við verðum að fá að þakka öllum sem hjálpuðu okkur við þessar athafnir. Sérstaklega viljum við fá að þakka Ellen, KK og Eyþóri fyrir yndislegan tónlistarfluttning og svo má ekki gleyma að þakka öllum sem komu með veitingar. (Það eru nokkrir diskar og kökuílát heima sem einhverjir gleymdu)
Við viljum samt segja að við hefðum aldrei í okkar lífi vilja vera án þessarar lífsreynslu, að eignast hana Elvu Björgu. Hún kenndi okkur bara svo margt og við fengum þann heiður að annast hana þótt það hafi verið allt of stuttur tími.
Núna ætlum við fjölskyldan aðeins að hreinsa hugann og fara saman á skíði til Austurríkis og leika okkur þar í 1 viku. Mér var boðin svo gamla vinnan mín og ég byrja að vinna aftur í byrjun maí. Auðvitað verður það hálf skrítið en eins og Edda Kristín dóttir okkar sagði við okkur um daginn. Nú verðum við að reyna að læra uppá nýtt að lifa eðlilega daga.
Bloggar | Breytt 10.2.2010 kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar