27.2.2010 | 10:46
Við reynum að horfa fram á veginn
Um síðustu helgi kom fjölskyldan til baka eftir stutt en frábært frí saman. Eitthvað sem var nauðsynlegt fyrir alla. Komast í nýtt umhverfi, ná að ræða vel saman og ekki síst að fá örlitla útrás.
Hefðbundnir skóladagar tóku síðan við hjá Daníel Erni og Eddu Kristínu, en þau eru búin að standa sig eins og hetjur síðustu vikurnar og hafa sýnt hvor öðru sem og okkur foreldrunum mikinn styrk. Vinnan hjá Agli er með rólegra móti núna og er því heima þessa dagana. Við höfum því reynt að nota tækifærið og ganga frá ýmsum hlutum sem best er að gera í sameiningu.
Við erum enn að fá póst merktan á Elvu Björgu. Þó erfitt sé, þá er það auðvitað eitthvað sem verður að teljast á vissan hátt eðlilegt til að mynda reikningar fyrir sjúkrabíla, mjólk og lyf. Eitthvað sem virðist bara fara seint í gegnum kerfið. Það var samt gríðalega erfitt að lesa póstinn frá sveitarfélaginu þar sem við áttum að staðfesta hana í leikskóla á árinu, en hér er leikskólaskylda fyrir börn þriggja ára og eldri.
Þó svo það hafi verið búið að taka öll tæki sem fylgdu Elvu Björgu af heimilinu þá átti enn eftir að ganga frá ýmsum hlutum eins og fatnaði og leikföngum. Í vikunni fannst okkur eins og rétti tíminn væri komin til að ganga í það verk. Örlitlu af fatnaði og leikföngum ákváðum við að geyma en öðru hefur verið pakkað og verður gefið til líknarmála. Þá var enn mikið til af slöngum, síum, grisjum, plástrum og fleiru og verður vonandi hægt fyrir barnaspítalann að taka við þessu.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hugsa oft til ykkar og fallegu stelpunnar ykkar sem ég fylgdist vel með hér á síðunni ykkar. Mér fannst ég vera farin að þekkja ykkur svolítið og finna þörf fyrir að vita hvernig gengi með stelpuna,enda þegar ég las það að hún væri fallin frá,hrundu tárin niður kinnarnar. Ég hugsa oft um hana Elvu,fallega brosið hennar og gullfallega hárið hennar. Ég geng Esjuna reglulega og fyrsta gangan mín þangað eftir hennar fráfall lagði ég stein á vörðuna fyrir hana. Skrítið sem það kann að hljóma,því við þekkjumst ekkert,þá virkilega þótti mér vænt um stelpuna ykkar. Ég á 4.börn sjálf og sú yngsta mín er jafngömul Elvu. Mig langaði bara að láta vita af mér og að mínar hugsanir eru oft hjá ykkur.
Mínar bestu kveðjur: Hildur Hallvarðsdóttir
Hildur Hallvarðsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 13:20
Við sendum ykkur öllum knús og kærar kveðjur úr Grindavíkinni.
Kveðja Halla frænka og fjölskylda.
Rannveig Böðvarsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2010 kl. 12:02
Sendi fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls Elvu Bjargar. Guð blessi minningu hennar. Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.3.2010 kl. 16:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.