Leita í fréttum mbl.is

Dagurinn í dag var misjafn

Ég svaf ekki vel í fyrrinótt og fór á fætur með pabba klukkan sjö í morgun.  Ég var með vægan hita í allan dag og náði ekki að sofa nema nokkra litla dúra.  Fyrir utan móðurmjólkina, þá náði ég aðeins að drekka tvo litla pela af mjólk að auki en það er langt frá því að vera nóg yfir daginn.

Ég náði þó að halda í þyngdina mína yfir helgina og er það jákvætt.  Við ræddum við barnalæknirinn minn og var ákveðið að ég fái gjafaslöngu setta í mig næsta Miðvikudag.

Í dag fékk ég að smakka fasta fæðu (eplamauk) í fyrsta skipti og þótti mér það ótrúlega gott á bragðið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kveðja frá mér og mínum.  Ég kvefaða konan með kvefuðu börnin kemst ekki í heimsókn til ykkar en heimsæki ykkur allavega hér núna :).  Kveðja, Laufey.

Laufey (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 08:30

2 identicon

En hvað þú ert falleg og yndisleg, lítil prinsessa.  Gaman að geta fylgst með þér hér á blogginu.  Vonum að allt gangi sem best hjá ykkur, kæra fjölskylda.  Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem þið þurfið svar við, við erum hér til að hjálpa.  Okkur þykir líka gott að tala við eitthvern í sömu sporum og við erum í. 

Kær kveðja, Aldís, Halli, Silja Katrín, Sigurður Sindri og Ragnar Emil.

Aldís og Halli (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 21:10

3 identicon

Hæhæ

Þú ert algjor prinsessa, ég fylgist með þér hérna og vona að gangi vel.

kv

Hrönnsla

Hrönnsla (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 16:34

4 identicon

hæ litla snúlla. vona að þú hafir það rosalega gott, hugsa til ykkra allra.

 knús til mömmu, pabba, Daníels og Eddu.

kveðja

sigga Harpa fyrrum Madridarbúi.

Sigga Harpa (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 454664

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband