13.3.2008 | 20:57
Stefnumót við lækna
Við áttum langan og strangan en ekki síst góðan dag með læknateyminu mínu í dag. Þar var rætt opinskátt um síðustu vikur sem og hvernig við ætlum að vinna sameiginlega að framtíðinni.
Þar sem ég hef verið að nærast nokkuð vel undanfarna daga þá var ákveðið að fresta því að ég fengi gjafaslöngu en það verði þó hægt að gera með mjög litlum fyrirvara. Á morgun verður mér þó sendar græjur og verður mömmu og pabba kennt að nota þær. Í byrjun mun ég fá "hóstavél" sem mun hjálpa mér að hósta ef ég þarf að losa eitthvað úr hálsinum mínum sem og tæki sem er nauðsynlegt til að stýra næringargjöf þegar ég er komin með slönguna. Mamma fær svo eina netta mjaltarvél því að ég ætla að halda áfram að drekka mjólkina frá mömmu eins lengi og ég get.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.