13.5.2008 | 15:44
Get ég tekið nefslönguna úr mér sjálf ?
Mamma og pabbi hafa verið að spá í hvort ég gæti e.t.v. dregið slönguna úr mér sjálf. Hún hefur verið vel fest og því hafa áhyggjur þeirra ekki verið miklar. Í gær var nýja slangan hins vegar sett í vinstri nefgöngin og vinstri hendi er mun sterkari.
Í dag heyrði mamma mikil ánægjuhljóð frá mér og fór að athuga hvað væri. Hafði ég þá náð taki á slöngunni og hreinlega togað hana út og sat hæst ánægð með hana í fanginu. Það er engin hætta á ferðum og ætlar Sigurlaug læknir að koma fljótlega og setja í mig nýja slöngu.
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert nú meiri grallarinn litla skott!!, og ég tala nú ekki um hvað þú ert dugleg í öllu þessu stússi í kringum þig, algjör hetja verð ég nú að segja!
Bið að heilsa mömmu og pabba, kveðja Rannveig Jónína Guðmundsdóttir frænka
Rannveig (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 15:56
Hehe það er von að heyrst hafi ánægjuhljóð, litla rófan.
Kær kveðja til ykkar allra, ég bið fyrir ykkur og óska þess að allt gangi að óskum.
Ragnheiður , 13.5.2008 kl. 16:44
LOL,- þú ert ekki öll þar sem þú ert séð!! enda komin af kjarna fólki í bóðar ættir ;D
Stína (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 17:05
Kær kveðja til ykkar. Ég vona líka að allt gangi að óskum. Mikið er hún falleg litla stúlkan.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.5.2008 kl. 20:44
Dugleg lítil grallarastelpa, gangi ykkur vel!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.5.2008 kl. 22:44
Hæ Elva Björg.
Ég var að skoða söguna þína og þú ert algjör hetja!
Stuðningskveðjur frá Íslandinu,
Kristín
kristín (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 22:47
Ég sá þetta blogg hjá Höllu Rut. Ég óska bara góðs gengis og allt fari á besta veg. Fæ samt smá illt i magan af að lesa þetta...var sjálfur endalaust á spítala sem smábarn..
Óskar Arnórsson, 14.5.2008 kl. 01:10
Já Óskar ég sá það einmitt þar líka og misskildi það eitthvað á þá leið að maður ætti að senda inn kveðjur þar og hún kæmi því áleiðis en sá seinna að hún benti á þessa síðu. Ég sendi hér með mínar bestu kveðjur og vona að stúlkunni vegni sem allra best.
Johnny Rebel (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 01:42
Gangi ykkur vel með sonduna og ég veit að börn eru ótrúlega flink við að smeygja eins og einum putta undir slönguna og blúbbs slangan farin út.
Ég sá að það er sett kaka eða gerfiskinn undir sonduna og síðan heftiplástur til að halda henni. Það er líka mjög gott að nota glæran plástur til að halda henni og þá enga köku og það fer ekkert illa með húðina ( þá er hún líka ekki eins áberandi) einnig er frábært að nota bara silkiplástur. Enn og aftur óska ég ykkur góðs gengis, knús úr Keflavíkinni.
Fjóla Æ., 14.5.2008 kl. 13:25
Hí hí litla snúllan, Ragnar Emil tók einmitt sína nefsondu úr sér í eitt skiptið og var ekkert lítið glaður með afrekið. Var reyndar mjög fúll þegar hún var sett aftur í, gamanið tók fljótt enda. Hann er núna orðinn svo öflugur að hann er alltaf að tosa í magasonduna núna, eins gott að hann rífi hana ekki úr sér líka, það yrði aðeins meira mál ;)
Hafið það sem best, knús frá Íslandi
Ragnar Emil og Aldís.
Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 15:57
Sá þessa síðu í gegnum Höllu Rut og verð bara að segja að hugrekkið og styrkurinn sem þú og foreldrar þínir sína er áðdáunarvert.
Þið eruð þeir einstaklingar sem fólk ætti að líta upp til. Gangi ykkur sem best í öllu sem þið takið ykkur fyrir hendur.
Heillakveðjur, Hilja
Hildur L Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 16:02
Sæl Elva Björk og fjölskylda.
Mikið er sorglegt að þú sért veik. Jesús elskar þig og vill lækna þig. Ég vona að þið getið fundið fólk í Lúxemborg sem getur beðið fyrir þér Elva mín. Ég skal senda bænarefni um þig á útvarpsstöðina Lindina og þau biðja fyrir þér í fyrramáli.
Guð veri með þér yndislega krútt.
Kær kveðja
Rósa Aðalsteinsdóttir
Vopnafirði
Rósa Aðalsteinsdóttir, 14.5.2008 kl. 19:48
krúttið mitt,, þú ert nú meiri prakkarinn.. :D Bið að heilsa allri fjölskyldunni og vonandi get ég nú farið að hitta þig fljótlega :D Kv. Kristín frænka
Kristín Ósk (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.