Leita í fréttum mbl.is

Minni nefsonda og dagurinn strax betri

Slangan fór alls ekki vel í mig og um helgina var ég algjörlega ómöguleg.  Ég kúgaðist af fastri fæðu, var vælin og óróleg.  Þá byrjaði að myndast slím í nefi og hálsi sem ég hef verið laus við hingað til.  Á laugardagskvöld fóru því mamma og pabbi með mig uppá barnasjúkrahús þar sem ég var mynduð til að hægt væri að ganga úr skugga um að slangan lægi eðlilega, sem hún gerði.  Hins vegar var mikið slím í nefi og hálsi og mikið loft í maganum.

Fá mér að drekka með hjálp gjafatækisins

Í gærmorgun fór ég síðan í sjúkranudd til að losa loft úr maganum og til að losa um slím í öndunarveginum.  Í morgun var gert hið sama og fengu mamma og pabbi þjálfun í að nota sogtækið.  Mömmu og pabba fannst ekki auðvelt að setja sogrör í gegnum nefið á mér eða munn og niður í háls en þau sjá nú samt að mér líður mun betur á eftir.

Sjúkranudd til að losa slím og loft

Það sem gerði hins vegar gæfu muninn í dag var að ég fékk minni nefslöngu og mér leið strax miklu betur.  Í dag gat ég auðveldlega borðað fasta fæðu án þess að kúgast og hef verið meira og minna eitt ánægjubros.  Slímmyndun er þó enn einhver en vonandi náum við að losa um það fljótlega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

OOObbosí, þetta hefur verið ljóta ævintýrið!! En gott að þér líður betur, enda ekki langt í brosið hjá þér litla ljós :)

Bestu kveðjur til allra úr rokinu og suddanum hér ;)

Stína (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 10:17

2 Smámynd: Halla Rut

Elsku litli engillinn.

Ég fæ tár í auga við að sjá hve mikið er lagt á litla sál. Hún er samt heppin að eiga svona góða foreldra sem gefa henni alla sína ást og tíma.

Með minni bestu kveðju.

Halla Rut (vinkona Stínu)

ps: Ætla að fá að benda á þetta á minni síðu. 

Halla Rut , 13.5.2008 kl. 12:52

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég bið guð að halda utan um þig litli engill og hjálpi þér. með kæri kveðju til þín og foreldra þína.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.5.2008 kl. 13:21

4 identicon

Gangi þér allt í haginn, litla hetja. Megir þú ná góðum bata.

                                   Með beztu kveðjum

                                   Óskar Helgi Helgason      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 13:22

5 Smámynd: Erna

Elsku Elva litla hetja, sendi þér og fjölskyldu þinni baráttukveðjur. Ég ætla að fylgjast með baráttunni þinni og hafa þig í bænum mínum þó að ég þekki ykkur ekki. Bestu kveðjur Erna.

Erna, 13.5.2008 kl. 13:24

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Baráttukveðjur frá Íslandi!

Markús frá Djúpalæk, 13.5.2008 kl. 13:31

7 Smámynd: Steinn Hafliðason

Elsku barn, ég sendi þér og fjölskyldu þinni baráttukveðjur

Steinn Hafliðason, 13.5.2008 kl. 13:51

8 Smámynd: halkatla

 hjartans kveðjur litla ljós

halkatla, 13.5.2008 kl. 14:01

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku litla vina. Mér er ljúft að bæta þér í bænir mínar. Ósköp er lagt á litla stúlku og fjölskyldu hennar. Ætla að fá að halda áfram að fylgjast með ykkur.  Guð gefi styrk og kærleik til ykkar  You Go Girl

Ásdís Sigurðardóttir, 13.5.2008 kl. 14:22

10 Smámynd: AlliRagg

Megi ljós þitt skína um ókomin æviveg, litla barn.

AlliRagg, 13.5.2008 kl. 14:31

11 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Stuðningskveðjur frá Svíþjóð.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.5.2008 kl. 14:43

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Falleg lítil stúlka.

Guð, veri með henni og allri fjölskyldunni.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 13.5.2008 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 454600

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband