Leita í fréttum mbl.is

Þið eruð líka best - Gleðilega jólahátíð

Síðustu dagar hafa verið hálfgerðir rússíbanadagar.  Sérstaklega dagarnir fyrir síðustu helgi.  Ég átti til að halda mettun mjög illa og fá erfið föll sem þurfti að bregðast mjög skjótt við.  Í nótt heyrðu mamma og pabbi mikið kurr í önduninni og því var ekki annað að gera en að reyna að losa allt slím úr öndunarveginum.   Eftir mikla vinnu náði ég að losa mig við slím sem aldrei fyrr og eru tölurnar mínar loksins eins og þær verða bestar.  Ég ligg því núna ofboðslega sátt og ánægð og horfi á (og tala við) Dóru í jólaþætti í þýska sjónvarpinu.

Í kvöld ætla ég að sitja með fjölskyldunni til borðs og taka þátt í aðfangadagskvöldi og ætlum við síðan að opna pakka saman.  Á morgun fer ég síðan í jólaboð til ömmu og afa í Niederanven.

Á mínu heimili eins og á svo mörgum átti að gera marga hluti fyrir hátíðarnar en eins og oft þá er því miður ekki hægt að framkvæma þá alla.  Við höfðum tekið ákvörðun um að taka allt frekar rólega og ekki pirra okkur á hlutum sem mega hvort sem er bíða en þess í stað njóta þess að fá að vera saman.  Þannig fái andi jólanna frekar að njóta sín, andi sem vekur upp von um gleði, frið, framtíð og frelsi.

Stuðningurinn sem ég og fjölskyldan er búin að fá frá ykkur öllum er algjörlega ómetanlegur og væri erfitt fyrir okkur að takast á við alla þá erfiðleika sem veikindi mín skapa, án þessa mikla stuðnings.  Ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla.  Þið eruð líka best.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku englamúsin mín

Mikið óska ég þér og fjölskyldunni þinni gleðilegra jóla, og það er alveg rétt að nú er um að gera að njóta, njóta, njóta

Risajólaknús til ykkar allra

Stína (IP-tala skráð) 24.12.2009 kl. 09:56

2 identicon

Kæra fjölskylda!

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem allra best um hátíðarnar.

Kærar kveðjur frá Höllu frænku og fjölskyldu.

Rannveig Böðvarsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2009 kl. 10:08

3 identicon

Elsku Elva Björg og fjölskylda.  Við sendum ykkur okkar bestu jólaóskir og farsældar á nýju ári.  Hafið það ætíð sem allra best. Hugur okkar er hjá ykkur.  Jólaknús. Vilborg og börn.

Vilborg Reynisdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2009 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband