Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
4.8.2008 | 23:49
Miklar framfarir og aðgerðin er á
Ég hef sýnt miklar framfarir og í gær var ákveðið að ég þyrfti ekki lengur að fá grímuna. Að jafnaði eru allar tölur orðnar góðar, hvort sem er mettun, hjartsláttur osfrv. Enn er þó mikið slím sem hefur þurft að sjúga úr með með reglulegu millibili og hefur það leitt til falls á mettun en ég hef náð að rífa mig upp aftur.
Í morgun var ákveðið að ég mun fara í aðgerðina á miðvikudag, eins og áður var áætlað. Þangað til verð ég áfram á gjörgæsludeildinni enda mun ég þurfa að fara þangað aftur strax eftir aðgerðina.
Nú er ég að reyna að hvílast vel og nýt þess að horfa og hlusta á uppáhalds diskinn minn, Söngvaborgina. Virðist ég alls ekki fá leið á honum og er farin að reyna að syngja með.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.8.2008 | 00:22
Það er róglegt í heimsóknum
Þó svo mikill gestagangur sé e.t.v. ekki góður á gjörgæslu þá er takmarkaður gestagangur í lagi og sjálfsagður. Auðvitað er ekki gott að koma með ung börn þangað og alls ekki einstaklingar sem eru vitanlega með t.d. kvef.
Auðvitað snýst þetta allt um að ég nái mér og ég veit að ég mun gera það. Það verður líklega einhver bið á því að ég komist heim og mun ég örugglega fara á almenna deild áður en það verður. Mamma og pabbi verða því hjá mér á meðan og það væri gaman að ef fólk sér sér fært að kíkja við. Mamma getur sagt hvernig staðan er hverju sinni og því væri gott að hafa samband við hana áður.
Ég sá kveðjuna hans Björns Hinriks áðan og það er synd að ég geti ekki verið meira hjá honum. Því miður get ég ekki tekið á móti honum en hugsa til hans. Veit að hann meiddi sig og því sendi ég honum kveðju með lagi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.8.2008 | 20:16
Enn á gjörgæslu
Það hefur fundist örlítil sýking í blóðinu. Samt sem áður sýndi ég góðar framfarir í gær og ekkert að kvarta yfir grímunni, nuddinu, bankinu eða þegar slím er sogið úr mér. Í fyrrinótt vildi svo til að Sigurlaug læknir var á vakt á gjörgæsludeildinni. Þar sem vinkonan þekkir mig svo vel og ég hana var ákveðið að mamma og pabbi skyldu vera heima yfir nóttina og reyna að hvílast vel.
Seinnipartinn í dag byrjaði mér aftur að líða illa og kastaði nokkrum sinnum upp. Súrefnismettun fór niður, hjartsláttur upp og slímmyndun var meiri en vanalega sem ekki hjálpar. Á sjúkrahúsinu hefur verið reynt að ná góðu jafnvægi á næringargjöf á milli þess að ég er á grímunni og virðist enn þurfa að fínstilla það. Í kvöld fór mér þó að líða mun betur og gat farið aftur að brosa og rabba við foreldrana.
Við erum auðvitað með áhyggjur um hvernig fer með magaaðgerðina og eiga mamma og pabbi fund með sérfræðingunum á mánudag þar sem rætt verður um framhaldið. Þó er ljóst að það er algjörlega nauðsynlegt fyrir mig að fara í aðgerðina sem fyrst, sérstaklega til að minnka magaopið og reyna að koma í veg fyrir bakflæðið. Á móti kemur að ég verð að vera nokkuð sterk og laus við sýkingar áður en ég fer í aðgerðina til að minnka áhættuna þegar ég verð vakinn aftur.
Þetta getur orðið hálfgerð pattstaða en við erum ákveðin í að hlusta vel á sérfræðingana og við vitum að þeir hlusta og taka tillit til þess sem við segjum. Þetta er auðvitað allt mjög mikið álag og stressandi og því gott að mamma og pabbi séu svona ung og hress .
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Nóvember 2012
- Nóvember 2011
- Nóvember 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar