Leita í fréttum mbl.is

Tveir dagar með nefsondu

Nú er ég búin að vera með nefsonduna í mér í tvo sólarhringa.  Mamma og pabbi sjá mikinn mun á nætursvefninum enda hef í sofið báðar næturnar í átta klukkustundir án þess að vakna til að drekka.  Við getum núna náð að skipuleggja næringargjöfina eins og best verður á kosið og verðum við næstu daga að finna út hvernig best er að dreifa gjöf á fastri fæði og vökva yfir daginn.

Ég er samt búin að vera pirruð yfir daginn enda mátti svo sem búast við því.  Það er ekkert gott að hafa slöngu hangandi í sér og mér finnst slangan vera í sverari lagi.  Ég á til að kúgast örlítið yfir slöngunni og virðist sem það sé að myndast örlítið slím í hálsinum með henni.  Mamma og pabbi ætla því að sjá hvort ekki sé hægt að setja örlítið nettari slöngu í mig í dag og sjá hvort að það sé ekki betra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku kerlingin mín, það er enginn smá plástur sem er búið að klína á þig ljúfust !! En tilgnagurinn helgar víst meðalið þannig að vonandi gengur þetta allt saman eins og best verður á kosið :)

Nú er s.s. tölvan mín komin í lag svo ég get farið að fylgjast með þér á netinu- fyrst pabbi og mamma eru svona dugleg að skrifa og setja inn myndir fyrir þig. 

Mínar bestu kvðjur til þín og ykkar allra með þökkum fyrir gestristnina um daginn  ,- knús og kossar frá einni af barnapíunni :D 

Stína (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 454600

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband