Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Miklar framfarir og aðgerðin er á

Ég hef sýnt miklar framfarir og í gær var ákveðið að ég þyrfti ekki lengur að fá grímuna.  Að jafnaði eru allar tölur orðnar góðar, hvort sem er mettun, hjartsláttur osfrv.  Enn er þó mikið slím sem hefur þurft að sjúga úr með með reglulegu millibili og hefur það leitt til falls á mettun en ég hef náð að rífa mig upp aftur.

Sef hér vært á sjúkrahúsinu 

Í morgun var ákveðið að ég mun fara í aðgerðina á miðvikudag, eins og áður var áætlað.  Þangað til verð ég áfram á gjörgæsludeildinni enda mun ég þurfa að fara þangað aftur strax eftir aðgerðina.

Flott að geta horft á sjónvarp á meðan ég er nudduð

Nú er ég að reyna að hvílast vel og nýt þess að horfa og hlusta á uppáhalds diskinn minn, Söngvaborgina.  Virðist ég alls ekki fá leið á honum og er farin að reyna að syngja með.


Það er róglegt í heimsóknum

Þó svo mikill gestagangur sé e.t.v. ekki góður á gjörgæslu þá er takmarkaður gestagangur í lagi og sjálfsagður.  Auðvitað er ekki gott að koma með ung börn þangað og alls ekki einstaklingar sem eru vitanlega með t.d.  kvef. 

Gríman hefur þarna verið tekin af mér í bili og er ég að jafna mig

Auðvitað snýst þetta allt um að ég nái mér og ég veit að ég mun gera það.  Það verður líklega einhver bið á því að ég komist heim og mun ég örugglega fara á almenna deild áður en það verður.  Mamma og pabbi verða því hjá mér á meðan og það væri gaman að ef fólk sér sér fært að kíkja við. Mamma getur sagt hvernig staðan er hverju sinni og því væri gott að hafa samband við hana áður.

Ég sá kveðjuna hans Björns Hinriks áðan og það er synd að ég geti ekki verið meira hjá honum.  Því miður get ég ekki tekið á móti honum en hugsa til hans.  Veit að hann meiddi sig og því sendi ég honum kveðju með lagi.  


Enn á gjörgæslu

Það hefur fundist örlítil sýking í blóðinu.  Samt sem áður sýndi ég góðar framfarir í gær og ekkert að kvarta yfir grímunni, nuddinu, bankinu eða þegar slím er sogið úr mér.  Í fyrrinótt vildi svo til að Sigurlaug læknir var á vakt á gjörgæsludeildinni.  Þar sem vinkonan þekkir mig svo vel og ég hana var ákveðið að mamma og pabbi skyldu vera heima yfir nóttina og reyna að hvílast vel.

Ég náði að sofna vel þó svo að ég væri með allar þessar slöngur og snúrur í mér

Seinnipartinn í dag byrjaði mér aftur að líða illa og kastaði nokkrum sinnum upp.  Súrefnismettun fór niður, hjartsláttur upp og slímmyndun var meiri en vanalega sem ekki hjálpar.  Á sjúkrahúsinu hefur verið reynt að ná góðu jafnvægi á næringargjöf á milli þess að ég er á grímunni og virðist enn þurfa að fínstilla það.  Í kvöld fór mér þó að líða mun betur og gat farið aftur að brosa og rabba við foreldrana.

Sigurlaug var á vakt og á að sjá um mig

Við erum auðvitað með áhyggjur um hvernig fer með magaaðgerðina og eiga mamma og pabbi fund með sérfræðingunum á mánudag þar sem rætt verður um framhaldið.  Þó er ljóst að það er algjörlega nauðsynlegt fyrir mig að fara í aðgerðina sem fyrst, sérstaklega til að minnka magaopið og reyna að koma í veg fyrir bakflæðið.  Á móti kemur að ég verð að vera nokkuð sterk og laus við sýkingar áður en ég fer í aðgerðina til að minnka áhættuna þegar ég verð vakinn aftur.

Pabbi var hjá mér í dag, föstudag.

Þetta getur orðið hálfgerð pattstaða en við erum ákveðin í að hlusta vel á sérfræðingana og við vitum að þeir hlusta og taka tillit til þess sem við segjum.  Þetta er auðvitað allt mjög mikið álag og stressandi og því gott að mamma og pabbi séu svona ung og hress Wink.

 


« Fyrri síða

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 454622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband