Leita í fréttum mbl.is

Ég er loksins komin aftur heim

Ég vona að þið fyrirgefið hvað langt er síðan ég hef uppfært síðuna en síðustu dagar hafa verið mjög annasamir.  Ég vil samt með ánægju segja að ég er loksins komin aftur heim.

Nýkomin heim aftur af sjúkrahúsinu

Margar vikurnar á sjúkrahúsinu hafa verið erfiðar en eitthvað gerðist síðustu helgi.  Mér fór að líða mun betur og sýndi það óspart með mínu fallega brosi.  Nýja öndunargræjan virkar mjög vel og næ ég að hvílast mjög vel á henni.  Nefmaskinn er þó ekki alveg sá besti því að örlítið loft lekur með honum.  Ég á að fá nýjan í vikunni og vonandi verður það til þess að græjan verði fullkominn.

Fékk nýja blöðru og ofboðslega montin með hana

Eitt af vandamálum síðustu mánuði hefur verið að ná að auka við mig eðlilega þyngd.  Á sjúkrahúsinu prófaði ég mjólkurtegund sem nýkomin er á markað og fór hún svona rosalega vel í mig.  Á þeim rúmlega fimm vikum sem ég var á sjúkrahúsinu náði ég að bæta við mig tæpu kílói og er nú orðin 6,4 kg að þyngd.  Nú hefur dæmið á vissan hátt snúist við og verð ég að passa mig mjög vel að þyngjast ekki of mikið og of hratt.

Í fanginu á Brian.  Bob, Christof og Sigurlaug að rabba við mig

Við erum loksins búin að fá heimahjúkrun fyrir mig og frá og með deginum í dag mun hjúkrunarfræðingur koma til mín á hverjum degi og vera hjá mér eftir þörf. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Vala og fjölskylda,

Þetta eru góðar fréttir, og gott að þið eruð komin heim.   Gangi ykkur allt í haginn. Hugsa til ykkar.

Bestu kveðjur frá öllum hér.

Sigurbjörg.

Sigurbjörg Daníelsdóttir (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 21:59

2 identicon

Frábærar fréttir, til hamingju með að vera komin heim, loksins.  Gott að þér líður svona mikið betur.

Flott blaðran þín, þú ert greinilega alsæl með hana.

Knús frá Kvistavöllum, Aldís og Ragnar Emil.

Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 09:42

3 identicon

Enn frábært að heyra að þú sért komin heim í faðm fjölskyldunnar! Ég skal bara rétt trúa því að þú sért glöð- og allir hinir fjölskyldu meðlimirnir líka :D

Þrefalt húrra fyrir ykkur

Stína og Davíð

Kristín Pálsdórttir (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 10:40

4 identicon

Gaman að lesa þessar fréttir! Til hamingju með þennan áfanga! Gott að öll fjölskyldan sé nú saman - njótið þess.

kveðja - Ingibjörg Sif

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 10:50

5 identicon

Velkomin heim sterka stelpa! Þetta voru sannarlega góðar fréttir. Bestu kveðjur til ykkar allra,

Gurra.

Gurra (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 11:03

6 identicon

Til hamingju elsku litla snúlla með að vera komin heim. Yndislegt að lesa hvað þú ert búin að vera dugleg og allt farið að ganga betur. Hafið það gott kæra fjölskylda.

Kveðja frá Kefinni

Bryndís Líndal

Bryndís Líndal (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 12:51

7 identicon

VELKOMIN HEIM !! 

Það sést á þér hvað þér líður MIKLU betur litla prinsessa, gaman að sjá fallega brosið þitt aftur.  Gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá þér/ykkur.

Kveðja Ása og co.

Ása og Tryggvi Þór (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 14:54

8 identicon

Til hamingju með heimkomuna. Frábært að heyra að allt gangi betur og að nú sé öll fjölskyldan saman í Niederanven.

Guðbjörg og Óttar Andri

Guðbjörg Steinarrsdóttir (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 16:52

9 identicon

TIl hamingju elsku fjölskylda :*

Alveg yndislegt að þér líður betur og  og allt gangi vel :) Stóóórt Knús frá mér til allra.. hugsa til ykkar á hverjum degi :*

 Kv.Kristín Ósk frænka

Kristín Ósk (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 17:51

10 identicon

Hér er ekki harðfenni

sem hjaðnar fyrir sól,

hér er ekki þrekmenni,

hér er hörkutól!

Bestu kveðjur frá Riga, frábært að sjá ykkur öll heima aftur!

Ragnar

Ragnar Olafsson (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 18:26

11 Smámynd: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir

Frábærar fréttir litla hetja! Velkomin heim og til hamingju með þennan áfanga í baráttunni, knús og kossar á alla famelíuna

Kveðja Rannveig frænka.

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, 8.9.2008 kl. 21:30

12 identicon

Elskulega fjölskylda, mikið er gott að litla daman fína er komin heim!  Bestu kveðjur til ykkar allra frá Gróu og co 

Gróa Guðbjörg Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 11:37

13 identicon

Til hamingju að vera komin heim.  Mikið lítur þú vel út elsku Elva Björg og gaman að sjá þig brosa svona sætt.  Gangi ykkur rosalega vel. Stórt knús frá Sibbu og co.

Sigurbjörg Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 454622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband