Leita í fréttum mbl.is

Af hverju getur ekki verið auðvelt að ákveða að ég þurfi hvíldarinnlögn ?

Ekki að spyrja af því.  Strax í dag fór að kólna nokkuð og nú er þetta allt annað og líður mér strax betur.  Þessi hitasvæla hefur þó leitt til þess að svefninn minn er orðin hálf óreglulegur og vill ég því mikið sofa yfir daginn en halda mér frekar vakandi fram eftir nóttu.

Nýkomin úr útibaði

Auðvitað finnst mér allra best að vera heima og ég veit að aðrir á heimilinu vita ekkert betra.  Ég skal þó alveg viðurkenna að það þarf að hafa mikið fyrir mér og þá sérstaklega síðustu mánuði.  Það er bara svo komið að það verður einhver að vera hjá mér nær öllum stundum.  Ekki bara að vera í húsinu, heldur hjá mér í stofunni.  Því höfum við reynt að hafa þann háttinn á að ef mamma eða pabbi þurfa að fara t.d. á efri hæðina þá er Daníel eða Edda hjá mér á meðan og geta þá kallað á mömmu og pabba ef eitthvað bjátar á.

Það gerir hlutina alls ekki auðveldari að pabbi er mikið í burtu vegna vinnunnar svo mesta álagið er auðvitað á mömmu. Ég er jú með hjúkrunarfólk sem kemur til mín 12 tíma á viku sem er stórkostlegt en það er einungis til að hægt sé að sinna nauðsynlegum hlutum eins og að kaupa inn í matinn eða sinna eldri systkinunum.  Auðvitað fáum við líka ofboðslega mikla hjálp frá vinum og ættingjum á hverjum degi en nú eru margir í burtu vegna sumarfría og því getur tíminn stundum orðið einmannalegur.

Við höfum oft rætt að gott væri að ég færi í hvíldarinnlögn á e.t.v. sex vikna fresti eða svo.  Það getur bara verið erfitt að setja svoleiðis tímamörk, sérstaklega þegar mér líður að öllu jöfnu vel og ekki eru mikil vandamál.  Ég veit samt að það má ekki gleyma þeim sem eru öllum stundum í kring um mig.  Eftir að mamma og pabbi byrjuðu að ræða þann möguleika að ég færi í hvíldarinnlögn á sama tíma og systkini mín færu í frí til Madrid hafði mamma samband við Kanner Klinik til að athuga hvort þetta væri hægt.

Kannerklinik

Christof læknir taldi ekkert sjálfsagðara en að ég væri hjá þeim í einhvern tíma.  Ég ætla því að fara á Kanner Klinik um miðjan mánuðinn og vera þar í viku eða svo.  Auðvitað ætla ég að taka með mér alla Söngvaborgar diskana mína og læknum og hjúkrunarfólki þarf ekki að leiðast því að amma Dídí sendi mér nýlega Söngvaborg 5.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra fjölskylda !! Sendum ykkur hlýjar og fallegar  hugsanir !! Þið eruð hetjur öll !! Auðvitað þurfa allir að hvíla sig og hlaða batteríin.  Eigið góða daga framundan og bestu kveðjur frá okkur fjölskyldunni. Knús og kossar.

Sigrún frænka og fjölsk. Grindavík (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 14:25

2 identicon

Sæl mín kæra!

Mikið skil ég vel að þú þolir hitann illa, kanski er loftkæling á spitalanum.... og ekki skemmir að geta sökkt sér ofaní 5 söngvaborgadiska  Svo er líka gott að þú kmist líka í frí eins og Edda og Daníel

innilegar kveðjur mín kæru

Stína (IP-tala skráð) 11.7.2009 kl. 11:11

3 identicon

Hæ elsku dúlla,

Mamma og pabbi fóru með mig til Islands og fékk ég ekkert ráðið um það.

Ég hef það bara gott hér en sakna þín ofsalega mikið. Við hlökkum svo til að koma og heimsækja þig sætasta. Bið að heilsa tengdó,

þinn Björn Hinrik 

Björn Hinrik (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 19:46

4 identicon

Sæl kæra fjölskylda

Vonandi tókum við ekki sólina frá ykkur  - hér hefur verið einmuna blíða og notalegt, kannski kærkomið fyrir ykkur að hvíla ykkur á hitanum og leyfa okkur að hlýna svolítið og roðna.

Vonandi komast kerru- og baðmál fljótt í lag og líka regla á hvíldarinnlögn, það er gott fyrir fjölskylduna að vita að það kemur reglulega svoleiðis tími sem þið getið notað til að hlaða batteríin og njóta öðruvísi samveru.  Þið vitið að sú stutta er í góðum höndum á meðan.

Bestu kveðjur,

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 17:34

5 identicon

elsku oll somul.

takk fyrir sidast, thad var yndislegt ad fa ad hitta ykkur i luxuslandinu. vid erum buinn ad vera her i taepan manud nuna, heppinn med vedur og allt bara i guddi. vid erum ekki i tolvusambandi svo vid erum half sambandslaus.

ast og kossar til ykkar

gua og co

gudny anna (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 454628

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband