Leita í fréttum mbl.is

Óbreytt líðan á milli daga

Líðan mín er svo sem óbreytt á milli daga.  Ég er búin að vera nokkuð stöðug síðasta sólarhringinn en er þó samt að fá mettunarföll og því hefur þurft að auka súrefnið í gegnum BiPABið til að ná mér aftur í jafnvægi.  Það er erfitt að átta sig á hvers vegna þetta er að gerast því að ekkert hefur fundist í blóðinu né á röntgenmyndum og því er e.t.v. bara best að trúa að þetta sé tímabundinn vírus sem ég nái að hrista af mér fljótt.

Því miður verður mamma nú að taka vaktina á sjúkrahúsinu meira og minna ein því að pabbi er komin með slæma flensu og hann má því ekki koma á sjúkrahúsið fyrr en hann er orðin góður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ elsku Elva mín,

Ég vildi ég gæti heimsókn þig á Kannerklinik. En ekkert má maður.  Bara sagt að maður sé of lítill, HA, ég sem er orðinn 2 ára. En ég hugsa til þín og sakna þín,

Þinn Björn Hinrik

Björn Hinrik (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 06:54

2 identicon

Þú hristir þetta fljótt af þér - það er nú að styttast í 2 ára afmælið og þá verður þú upp á þitt besta!

Batakveðjur til þín og pabba þíns!

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 08:38

3 identicon

Sæl kæra fjölskylda!

Við sendum ykkur kærar kveðjur héðan úr Grindavíkinni.

Kveðja Halla frænka og fjölskylda.

Rannveig Böðvarsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 10:34

4 identicon

Elskulega engla barn! Mikið er á þig lagt og góðu mömmuna þína og pabbann þinn. Guð gefi ykkur styrk til að komast í gegnum þetta erfiða tímabil. Love Ella.

Ella (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 454628

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband