Leita í fréttum mbl.is

Þokkalegir dagar að baki

Síðustu dagar hafa verið þokkalegir.  Ég er þó búin að eiga daga sem langt var í brosið og virtist vera hálf leið.  Í byrjun vikunnar var ég með hita og leið ekki vel.  Ákváðu því mamma og pabbi að fara með mig niður á sjúkrahús í skoðun.  Lungnamynd var í lagi og útöndun einnig.  Ekkert mein fannst heldur í blóðinu svo að ég fékk að fara aftur heim eftir skoðunina.

Náði síðustu sólageislum sumarsinns

Þó svo ég sé búin að vera kát og glöð í dag, þá er ég að hafa áhyggjur af púlsinum því að hann er búin að hanga í efri mörkum í allan morgun.  Það er búið að hreinsa öndunarveginn með öllum tiltækum ráðum og vonandi næ ég að fara að slaka á og ná góðum miðdegissvefni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl. leiðinlegt að heyra að þú sért ekki nógu hress. Vildi bara kvitta fylgist alltaf með ykkur. Fann ykkur í gegnum bloggið hans Ragnars Emils.angi ykkur vel. kv Ágústa mamma Ásgeirs sem er líka langveikur

Ágústa mamma Ásgeirs (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 15:01

2 identicon

Hæ sæta - alltaf saman pæjan   Vonandi er þetta bara hár "gleðipúls".  Gott að ma+pa eru duglega að setja inn fréttir og sérstaklega myndirnar, gaman að þeim. Fylgist alltaf með þó ég kvitti nú ekki í hvert sinn.  Bestu kveðjur,

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 16:41

3 identicon

Hæ sæta frænka, vona að þú farir nú öll að hressast og nýja kerran þín er æðisleg!

Kveðja Rannveig Gummadóttir

Rannveig frænka (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 22:54

4 identicon

Hæ sæta skvísa, vonum að þér fari að líða betur.  Flott nýja kerran/bílstóllinn, Ragnar Emil er eiginlega orðinn of stór í sinn.  Við erum mjög öfundsjúk út af veðrinu hjá ykkur, hehe, ekkert smá æðislegt að komast aðeins út í göngutúr. 

Við erum enn á spítalanum en í góðu yfirlæti og komumst vonandi heim sem fyrst, Ragnar Emil er allur að hressast.

Knús frá klakanum, Aldís og Ragnar Emil.

Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 10:45

5 identicon

Stattu þig stelpa ;) 

Við sjáumst svo örugglega fljótlega!

Salóme Mist (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 454606

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband