Leita í fréttum mbl.is

Flensupest

Í gær fór ég með mömmu og pabba uppá sjúkrahús til að máta nýja öndunarmaskann fyrir svefnvélina mína.  Því miður var hann alls ekki nógu góður.  Hann virkaði vel í byrjun en eftir smá tíma kom í ljós að útöndunin varð óhreinni með hverri mínútunni.  Það hljómar e.t.v. skrítið en maskinn virðist vera of þéttur fyrir vélina sem ég er með því að hún er með örlítið "dautt svæði" í slöngunni og því var ég að draga að mér að hluta til sama loftið og ég andaði frá mér.  Maskinn sem fylgdi vélinni lekur örlítið í augun en er samt sá besti sem ég get fengið í augnablikinu.

Síðustu daga er ég búin að vera með hita og þar sem ég var á sjúkrahúsinu þá var ákveðið að skoða mig hátt og lágt, taka blóðprufu og lungnamynd.  Ekkert fannst sem gat útskýrt þennan hita og þar til annað kemur í ljós þá verðum við að trúa að þetta sé, eins og sagt er í Söngvaborginni minni, einhver "flesupest".  Eldri systkini mín hafa líka verið með einhverja flensupest síðustu daga.

Þegar við vorum komin inn á sjúkrahúsið í gær varð ég strax hálf stressuð og undrandi.  Við vorum þar í næstum fjóra tíma og á tímabili nokkur bið.  Því var eðlilegt að ég gæti sofnað þarna á rúminu en það ætlaði ég ekki að gera.  Hélt mér vakandi allan tímann þó svo ég væri orðin örþreytt á tímabili því að ég ætlaði ekki að sofa þarna.  Ég ætlaði að sofa heima.  Þegar ég var komin út úr sjúkrahúsinu liðu ekki nema nokkrar mínútur þar til ég var komin í fastasvefn.  Heima er alltaf best. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 454606

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband