Leita í fréttum mbl.is

Ég á þetta sjónvarp !

Ég er búin að vera að fá örlítil föll síðustu daga en blessunarlega hefur verið hægt að hreinsa öndunarveginn fljótt og vel.  Þess á milli hafa tímarnir bara verið nokkuð góðir og notalegir. 

Það kom tillaga frá heimahjúkruninni að við fengjum öryggishnapp til að hafa heima og verður hann vonandi settur upp í dag.  Við verðum að vera raunsæ og hnappurinn ætti að gefa okkur aukna öryggistilfinningu.

Þar sem ég er algjörlega rúmliggjandi þá er mín besta skemmtun að horfa á uppáhalds barnaefnið mitt í sjónvarpinu.  Það svo sem heyrist ekki mikið í mér að jafnaði en ef aðrir á heimilinu eiga til að setja sjónvarpið á t.d. útþynnta unglingaþætti eða fréttir þá læt ég í mér heyra og á til að kvarta hástöfum.  "Ég á þetta sjónvarp" og allir fjölskyldumeðlimir vita það núna enda hætti ég ekki að kvarta fyrr en búið er að setja á efni sem mér finnst skemmtilegt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

LOL... mikið skil ég þig vel, enda er sjónvarpið í "þínu herbergi" ;D  Þú heldur áfram a standa þig vel stelpa,- eins og fjölskyldan þín öll !

Kveðjur frá ævintýraeyjunni

Stína (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 20:46

2 identicon

He he gott að hafa sterkar skoðanir á hlutunum :)

Við erum komin með svona öryggishnapp og veitir hann mikið öryggi.  Sérstaklega þegar ég er ein með Ragnar Emil, í erfiðum aðstæðum er ekki hlaupið að því að fara í símann og hringja á sjúkrabíl.

Knús frá Kvistavöllunum, Aldís og co.

Aldís Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 12:34

3 identicon

Haaaaaaaaa já sýndu þeim nú hver ræður!

Ást og kossar,

GuA

Guðný Anna (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 11:45

4 identicon

hehe ég kannast vel við þetta sjónvarpsgláp   Þórhildur er með lítinn ferða DVD í sínu rúmi, hún lætur sko alveg heira í sér þegar myndin stoppar haha

Steinunn Björg (mamma Þórhildar) (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband