Leita í fréttum mbl.is

Ég er kvikmyndarstjarna

Það er búið að vera nokkuð mikið að gera hjá mér í gær og í dag og verður svo næstu tvo daga.

Í gær fór ég í afmæli til ömmu Eddu og hafði rosalega gaman af því.  Allt gekk vel og ég stóð mig eins og hetja.

Svaka mikið að gerast

Birgitta frænka er í kvikmyndaháskóla í Prag og spurði hvort möguleiki væri á því að hún gerði heimildarmynd um mig og minn sjúkdóm sem lokaverkefni sitt.  Auðvitað er það sjálfsagt og því er ég búin að vera með upptökufólk hjá mér í gær og í dag og verður svo einnig næstu tvo daga.

Kvikmyndastjarna

Ég verð að viðurkenna að mér finnst allt þetta umstang í kringum mig bara vera dálítið skemmtilegt og nýt þess mikið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú ekki leiðinlegt að vera í sviðsljósinu og hugsa ég að þú fílir það sko í botn!

Bestu kveðjur til allra, kveðja Rannveig.

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir. (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 19:00

2 identicon

Jahérna, það eru aldeilis ævintýri að gerast hjá þér - ég trúi því bara varla að hún Birgitta litla sé farin að gera heimildarmyndir !! En það verður spennandi að fá kanski að sjá árangurinn einhverntíman ;D

Bestu kveðjur til allra og afmæliskveðjur til ömmu Eddu :)

Stína

Stína (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 21:06

3 identicon

Góðan daginn yndislegust...það er nú aldeilis fjör hjá þér þessa dagana...Guð og allir englarnir varðveiti þig...knús á línuna...bestu kveðjur Erla frænka

Erla Sigríður Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 10:21

4 identicon

Sæl kvikmyndastjarnan þín;) Vonandi getur maður svo séð myndina þína seinna meir;) Haltu áfram að vera svona dugleg;)

Vilborg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:14

5 identicon

Nei, nú er orðið allt of langt síðan ég hef kvittað fyrir innlitið! Og þetta er nú tilefni til þess - Mynd í smíðum!  Prinsessur sem eru vanar að hafa athygli allra kippa sér varla upp við svona umstang, njóta þess bara.  Vonandi verður hægt að sjá afraksturinn seinna.  Bestu kveðjur til ykkar allra - ég hugsa oft til ykkar. 

Ingibjörg Sif

Ingibjörg Sif Fjeldsted (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband