Leita í fréttum mbl.is

Ég elska að fá örlítið nammi

Þar sem ég fæ alla næringu í gegnum magahnappinn minn þá hef ég ekki fengið að bragða mikið síðustu mánuði.  Ég hef þó fengið að smakka nammi annað slagið en vandamálið er að ég get ekki sleikt eða sogið og því hefur ekki verið auðvelt að leyfa mér að prófa að bragða á einhverju.

Umm...smá nammi !!!

Um daginn kom stóra systir heim með lítinn brúsa með sælgætis-sprayi og vildi endilega fá að sjá hvort að mér þætti það gott.  Ég verð að viðurkenna að mér fannst það frábært.  Núna fæ ég annað slagið örlítið sælgæti með kóla eða jarðaberja bragði og ljóma ég hreinlega upp um leið og ég veit að ég er að fá smá nammi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mmmmmm...  við fáum alveg vatn í munninn.  Æðislegt að þú getur notið eitthvers smá.  Ragnar Emil hefur aðeins fengið að smakka bragð og finnst það alveg ágætt, verður reyndar svolítið skrítinn á svipinn og svo kemur glott, hehe, yrði gaman að prófa svona sprey fyrir hann :)

Knús á ykkur öll í Lux, 

Aldís og Ragnar Emil.

Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 21:05

2 identicon

Mikið áttu nú sniðuga systur að fatta þettaþað er nauðsynlegt að fá smá nömm!

Við hugsum til ykkar héðan frá Kínalandinu.

Ást og kossar,

GuA

Guðný Anna (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 07:40

3 identicon

Já hún er flott hún systir þín og njóttu þess að fá að smakka.Hugur okkar er hjá ykkur alla daga.Kærar kveðjur til ykkar frá Höllu  frænku og fjölskyldu.

Rannveig Böðvatsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 454620

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband