Leita í fréttum mbl.is

Sólböð og heimsóknir

Loksins kom sumarið aftur og gat ég þá farið aftur út á pall og baðað mig í sólinni og auðvitað í mínum gúmmíbát líka.  Amma Edda og Bryndís hjálpuðu mömmu að baða mig og naut ég dagsins til hins ýtrasta.

Gott að leggjast í sólina eftir baðið

Ég er enn að bíða eftir að bað- og kerrumálin fari að klárast en enn á sjúkrasamlagið eftir að samþykkja að aðstoða mig við fjárfestinguna.  Vonandi verður hægt að klára það mál í þessari viku.

Ég er svona stór

Síðustu misseri hefur verið þó nokkuð af heimsóknum til mín.  Sigga og börnin komu frá Svíþjóð, Vilborg og Kristín Ósk frænkur úr Keflavík komu til mín í síðustu viku og alla leið frá Kína komu Trausti og Guðný með dæturnar sýnar.  Sigurlaug læknir, Yves og Magnús komu líka við og voru hjá mér part úr degi svo og Þóra sem sagði mér nokkrar barnasögur.  Þá má ekki gleyma þeim sem koma næstum daglega eins og Ömmu Eddu og Bryndísi.  Þúsund þakkir til allra.

Baulaðu Búkolla ef þú heyrir - Þóra að segja mér sögu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú gott að sjá að öllum líður vel í sólinni    Ísland hefur verið nokkuð hlýtt undanfarið líka, sem er eins gott fyrir alla klakabúana sem komast ekki á heitari slóðir   Hafið það sem allra best öll sömul. 

kveðja,

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 11:57

2 identicon

Hæhæ elsku engill

Eg skil vel að allir vilji heimsækja þig ljúfust, ég kæmi daglega ef ég væri aðeins nær  En það er gott að heyra að þú kemst út í sumarið líka og getir notið útibaðsins

Kveðjur og kossar til allra

Stina (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband