Leita í fréttum mbl.is

Algjörir rússíbanadagar

Því miður er Elva ekkert að lagast, það er enn mikið slím í henni og hún er oft að falla í mettun. Í gærkvöldi féll vinstra lungað saman og henni leið mjög illa með kaldan svita og hita.  Við hjónin vorum hjá henni síðustu nótt.  Þegar leið á nóttina lagaðist hún aðeins og lungað opnaðist að hluta til, það finnst engin sýking í blóðrannsókn svo það virðist vera að sjúkdómurinn hefur bara versnað.

Nývöknuð eftir góðan nætursvefn

Við reynum að það séu alltaf einhverjir hjá henni dag og nótt, því hafa ættingjar og vinir tekið vaktir með okkur svo við náum að fara heim annað slagið að kíkja á eldri börnin og gefa þeim að borða og henda í þvottavél. (við gætum ekki gert þetta án þeirra hjálpar, takk elskurnar). Eldri börnin eru búin að vera í viku fríi og hafa verið mikið að heiman hjá vinum að gista osfr. Svo byrjar skólin hjá þeim aftur á morgun.

Að horfa á sjónvarpið.  Það má sjá að púlsinn sem er efsta talan er allt of hár

Læknateymið ætlar að hittast á morgun og funda um litlu prinsessuna, og svo munum við funda með þeim í kjölfarið. Ég býst svo sem ekkert við einhverjum meiriháttar ákvörðunum, enda lítið annað hægt að gera í þessari stöðu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hugur okkar er hjá ykkur og sendum við ykkur baráttukveðjur.

Kv.Halla frænka og fjölskylda.

Rannveig Böðvarsdóttir (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 18:54

2 identicon

Ég sendi baráttukveðjur til þín og þinna Elva Björg litla sæta síbrosandi stúlka.

Kv.)

Elín (ókunnug)

Elín (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 00:48

3 identicon

Guð og allir englarnir veri með ykkur öllum...hugsa endalaust til ykkar...bestu kveðjur Erla frænka...

Erla Sigríður Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 00:59

4 identicon

Litla yndislega stúlka og fjölskylda hennar,

megi guð og aðrir góðir vættir vaka yfir ykkur og vernda.

Ég hef verið að fylgjast með ykkur hér og finnst þið öll svo sterk og litla ljósið sterkust!

Baráttukveðjur

Edda (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 08:33

5 identicon

Elsku Elva Björg og fjölskylda,

við hugsum til þín og sendum þér og fjölskyldu þinni baráttukveðjur.  Þú munt ná þér aftur og komast aftur heim litla hetja.  Ragnar Emil náði sér eftir mjög erfið veikindi síðasta vetur og styrkist bara og styrkist í dag, það er allt hægt :) Knús til ykkar allra,

Aldís og Ragnar Emil.

Aldís og Ragnar Emil (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 09:32

6 identicon

Elsku fjölskylda,

Hugur okkar er hjá ykkur. Megi guð gefa ykkur styrk og stoð.

Kristín og fjölskylda.

Kristín Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 10:45

7 identicon

Eg hugsa mikid til thin saeta prinsessan min.

Gud gefi ykkur styrk og stod.

Gigja

gigja (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 11:58

8 identicon

Elsku fjölskylda,

við sendum ykkur okkar hlýjustu kveðjur og hugsanir.

Knús og kossar

Gróa og fjölskylda 

Gróa Gubjörg (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 12:02

9 identicon

Elsku litla englabarn, Guð gefi þér þrótt til að standast þessar raunir, og  ykkur líka elsku Vala og Egill, Daníel og Edda. Megi morgundagurinn verða betri en í dag.

Love

Ella

Ella (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 16:02

10 identicon

Baráttukveðjur og knús í klessu á ykkur öll!

Kveðja Rannveig.

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 19:00

11 identicon

Elsku litla Elva mús, leiðinlegt að heyra hvernig ástandið er hjá ykkur!! Verst að geta ekki tekið skyndikúrs í barnahjúkrun og flogið á staðinn,-  eða fengið úthlutað eins og einu kraftaverki.... þú fengir pottþétt mitt

Risa knús og kram handa ykkur öllum

Stína (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 06:38

12 identicon

Litla baráttumús - ef það á að deila út kraftaverkum þá færðu mitt líka!

Sendi hlýja baráttustrauma!

Ingibjörg Sif (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 08:47

13 identicon

Elsku bestu þið! baráttustraumar til ykkar, hugur minn er allur hjá ykkur! kossar og knús! þú ert hetja Elva Björg !

Sigga Kristín (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 11:36

14 identicon

Kæra fjölskylda.

Kærar kveðjur frá Kína,
Trausti, Guðný Anna og stelpurnar.,

Trausti Magnusson (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 09:56

15 identicon

Kæra fjölskylda. Mér er orða vant. Ekki er hægt að gera sér í hugarlund erfiðleikana sem þið gangið í gegnum nú. Megið þið fá allan þann styrk sem þið þurfið á að halda, það eru greinilega margir með ykkur í huga og hjarta. Þið eruð í mínum hugsunum.

kærar kveðjur, Soffía

Soffía Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 10:30

16 identicon

Elsku sæta Elva Björg! Vonandi nærðu að hrista þetta af þér sem fyrst.  Baráttukveðjur til þín og fjölskyldunnar! Við hugsum til ykkar.  Bestu kveðjur frá Stullafjölskyldu.

Gróa (Stulla-mamma) (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um mig

Elva Björg Egilsdóttir
Elva Björg Egilsdóttir

fæddist í Luxembourg 30. Nóvember 2007.  Í Febrúar 2008 greindist hún með SMA-1 sjúkdóminn.  Elva Björg lést í Luxembourg 9. Janúar 2010.

Elva Björg Foundation:

Account:  0313-13-300192

KT: 301107-3660

IBAN IS44 0313 1330 0192 3011 0736 60

 

SWIFT: ESJAISRE

 

Reikningur í Luxembourg: í Dexia Banka

v.Reynisson"ref.Elva Björg"

IBAN LU66 0021 1933 1189 2800

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 454628

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband